Fartölvur með minnum (SSD) í stað harðra diska eru að koma á markað og Toshiba er að setja á markað eina slíka með 128GB drifi. Til stóð að hún færi á markað í Japan í þessum mánuði en því var frestað fram á sumar. Intel er með í pípunum 160GB SSD og Samsung er í startholunum.