Núna í mánuðinum kemur út þriðji og síðasti þjónustupakkinn fyrir Windows XP. Þeir sem hafa uppfært tölvur sínar reglulega í gegnum Windows Update finna ekki fyrir miklum breytingum en þeir sem hafa ekki gert það og setja inn SP3 munu taka eftir bættum afköstum. Stutt er síðan SP1 þjónustupakkinn fyrir Vista var gefinn út en eftirleiðis mun áhersla Microsoft verða á það stýrikerfi.