NFC eða Near Field Communications er afar skammdræg þráðlaus tækni sem er að rata í farsíma og er ætluð til að hægt sé að nota símana í stað kreditkorta eða til auðkenningar. Núna er verið að prófa frumgerð Nokia síma með NFC í London og Gadget Inspectors hjá Daily Telegraph skoðuðu hvernig þetta virkar.