OLED sjónvarpstæki gefa mjög góða liti og eru svo þunn að flatsjónvarpstækin í dag virka eins og ofvaxnir hlunkar. Leiðin frá frumgerð að framleiðslu er búin að vera löng og ströng og kannski ástæða til að hafa fyrirvara á yfirlýsingu um að þetta komi í verslanir á árinu 2009 en engu að síður verða þetta flott tæki.