Tvö börn á Spáni hafa verið lögð inn á stofnun vegna farsímafíknar en þau voru farin að nota símana í sex klukkutíma á dag, ýmist í símtöl, við að senda SMS eða í leikjum. Öðru í lífinu hafði verið ýtt til hliðar og blekkingum beitt til að verða sér úti um peninga til að kaupa frelsiskort. Reiknað er með að það taki eitt ár að lækna þau af fíkninni.