Það er algengt að linkar á klippur á YouTube lendi í póstinum og oft ansi skondið hvað ratar inn á þann vef. Hinsvegar er það svo að klippur sem virðast heimagerðar eru í raun gerðar af fagfólki í þeim tilgangi að kynna eitthvað. Eitt dæmi er myndskeið sem sýnir mann ganga af göflunum á skrifstofu. Myndin virðist fengin af öryggismyndavél en er í raun kynning á nýrri bíómynd.