Sony hefur gefið út nýjan fastabúnað (firmware) fyrir PSP ferðatölvu
sína en hann mun opna fyrir að nota RSS fréttaþjónustu og að spila
tilteknar gerðir af Windows Media hljóðskrám. Aðrir nýir eiginleikar
fylgja eins og að geta flutt á minniskubb höfundarréttaverndaðar skrár
af tilteknum gerðum.