Microsoft er búið að senda frá sér beta-útgáfu af Live Messenger sem á að koma í staðinn fyrir MSN Messenger sem er í notkun núna. Breytingar verða verulegar þar sem meðal annars verður hægt að sýsla með skeyti án þess að vera tengdur og nota þjónustuna fyrir símtöl.