RIM, eigandi BlackBerry, mun greiða fyrirtækinu NTP sem svarar til 38 milljörðum króna fyrir hugbúnað sem NTP telur sig hafa einkaleyfi á og gildir einu hvernig málið fer fyrir dómstólum. Margir notendur BlackBerry varpa öndinni léttar núna en málið var farið að valda verulegum titringi enda vofði það yfir að þjónustan myndi stöðvast ef lögbann yrði sett á hana.