Slagurinn á milli óliku háskerpu DVD kerfanna Blu-Ray og HD-DVD er kominn á evrópska grund núna þegar Toshiba setur á markað spilara í Evrópu. Hann mun kosta sem svarar til 62.000 ISK eða um helmingi minna en Blu-Ray spilari frá Sony. Ekki hefur náðst samkomulag um sameiginlega tækni í háskerpu DVD og því er um endurtekningu á VHS og Betamax slagnum að ræða eins og hann var árið 1980.