Fyrstu spilararnir fyrir háskerpu DVD þóttu ekkert sérstakir, og voru óratíma að hlaða inn diska. Nýrri kynslóðir eru röskari og þó ekki sé enn útséð um hvort HD DVD eða Blu-ray muni ná undirtökum á markaði er kominn tími til að gera upp við sig á hvorn hestinn skal veðja.