Baráttan um háskerpu DVD heldur áfram og núna á Sony leik með því að lækka verð á tilteknum spilara niður í USD 499. Enn er glundroði á markaðnum og svo er að sjá sem neytendur haldi að sér höndum til að sjá hver útkoman verður í slagnum milli Blu-ray frá Sony og HD DVD frá Toshiba.