Bretar vilja aukna þátttöku einkaframtaks í Galileo
Evrópska gervitunglastaðsetningarkerfið Galileo hefur tafist og kostað mun meiri pening en reiknað var með í byrjun, og núna þarf EB að setja aukið fé í verkefnið. Breskir þingmenn vilja aukna þátttöku einkafyrirtækja í verkefninu en aðrir spyrja hvers vegna verið er yfirhöfuð að vinna að þessu úr því að GPS er þegar til staðar, og gerir stórt séð það sama, og er ókeypis.