Á fyrstu sex mánuðum ársins vestur í BNA seldust helmingi fleiri háskerpumyndir á Blu-ray diskum en á HD-DVD. Nokkrar milljónir diska hafa selst á tímabilinu. Baráttunni milli Blu-ray og HD-DVD hefur verið líkt við myndbandastríðið fyrir aldarfjórðungi þegar VHS og Betamax tókust á um markaðsyfirráð.