Aðeins munaði einu atkvæði að Microsoft hefði fengið ritvinnslusniðið Open Office XML samþykkt sem alþjóðlegan ISO staðal en reglur eru um að titekin prósenta atkvæða þurfi að vera jákvæð, eins og það er orðað, til að tillaga sé samþykkt. Þrátt fyrir mótbyr eru fulltrúar Microsoft ekki af baki dottnir og munu reyna á ný á næsta ári.