Skip to main content

Kvikmyndaver í fylkingar í háskerpustríði

Þegar líða tók á sumarið benti ýmislegt til þess að Blu-ray sniðið í háskerpu DVD væri að ná yfirtökunum á kostnað HD DVD. Stærsta leigukeðja BNA á þessu sviði var meira að segja búinn að veðja á þann hest. Núna hefur kvikmyndaverið Paramount lýst yfir stuðningi við HD DVD og þar með breytist staðan. Sem fyrr eru neytendur mitt á milli, og þurfa að veðja á aðra hvora leiðina þegar kemur að kaupum á háskerpuspilara. 

Sjá nánar