Háskerpustríðinu svo gott sem lokið án sigurvegara
Ný könnun sýnir að nærri þrír fjórðu aðspurðra eru sáttir við myndgæðin í betrumbættum DVD diskum og hafa þar af leiðandi engan áhuga á HD DVD eða Blu-ray. Alltof mikið púður er búið að fara í baráttuna milli sniðanna tveggja og svo gæti farið að háskerpu DVD missi einfaldlega af lestinni.