Það eru orðin ein 15 ár síðan þreifingar byrjuðu í þá veru að nota raflagnir innan íbúða fyrir gagnaflutning. Þetta hentar þar sem aðstæður fyrir aðrar lagnir eru erfiðar eða þráðlaust gengur ekki gegnum þykka veggi. Ekki er óvarlegt að áætla að hægt sé að ná 20 Mb/sek. innan venjulegra íbúða.