Möguleikarnir til að senda skeyti milli fólks eru að aukast og yngri kynslóðir eru að fara aðrar leiðir en þær sem þeir eldri nota. Það þarf því ekki að koma á óvart að SMS og snarskeyti (IM) á borð við MSN eru aðferðir sem teknar eru framyfir tölvupóst og samdráttur í sendingum með honum er mælanlegur.