Skip to main content

Sagan á bakvið ákvörðun Warner

Frétt þess efnis að Warner hafi ákveðið að styðja Blu-ray í stað HD DVD á sér þá ástæðu að kvikmyndaverið taldi sig knúið að stöðva stríðið milli fylkinganna vegna þess að efnahagurinn í BNA er á niðurleið og sala á venjulegum DVD sömuleiðis að dragast saman. Vísbendingar voru einnig að Blu-ray hefði stærri hlut í tveimur mikilvægum löndum. Núna er fátt um fína drætti í herbúðum HD DVD og sniðið gæti "dáið úr ástarsorg" eins og það er orðað, en ekki endilega vegna þess að það er eitthvað lakara en Blu-ray. 

Sjá nánar