2026 UT-verðlaun Ský
Verðlaunahafar Upplýsingatækniverðlauna Ský 2026

UT-verðlaunahafar 2026
Sýslumannsembættin hljóta Upplýsingatækniverðlaun Ský 2026
Sýslumannsembættin eru handhafar heiðursverðlauna UT-verðlauna Ský árið 2026 fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni. Upplýsingatækniverðlaun Ský voru afhent í dag, föstudaginn 6. febrúar, við hátíðlega athöfn á UTmessunni, en hún er opin almenningi á laugardag kl. 11-16.
Fimm undirverðlaun
Auk fyrrnefndra heiðursverðlauna Ský voru afhend undirverðlaun í fimm flokkum. Fyrirtækið Mennsk ráðgjöf var verðlaunað sem fyrirmynd í fjölbreytileika, Evolv var verðlaunað fyrir að vera besta sprotafyrirtækið, Alfreð þótti veita bestu almennu stafrænu þjónustuna, þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkur var verðlaunað fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna og 50skills hlaut verðlaun fyrir að vera besta UT-fyrirtækið.
Verðlaun með bílpróf
„Upplýsingatækniverðlaun Ský eru nú afhent í sautjánda sinn. Ef verðlaunin væru einstaklingur væri þetta árið þegar bílprófið er komið í höfn hjá flestum. Þá tökum við fyrstu skrefin inn í fullorðinsárin þar sem ábyrgð, dómgreind, festa og forysta skipta meira máli en tilraunamennska og ævintýri. Árið 2026 snúast verðlaunin einmitt um þau sem kunna að fara með tæknina af öryggi og festu og umbreyta gervigreind, sjálfvirkni og stafrænum lausnum, þannig að þau hafi raunveruleg áhrif fyrir fólk, vinnustaði og samfélagið í heild. Tæknin er ekki lengur til að sýna hvað er hægt heldur til að sýna hvað skiptir máli,“ segir Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský.
Eftirfarandi er rökstuðningur og umsagnir dómnefndar í hverjum flokki fyrir sig.

Sýslumannsembættin
Sýslumenn hafa gert stórsókn í innleiðingu rafrænnar og stafrænnar þjónustu og eru embættin nú leiðandi í rafrænni opinberri þjónustu með hundruðum nýrra ferla og lausna sem hafa umbreytt stjórnsýslunni og fært hana nær almenningi. Árlega nýtir um helmingur landsmanna sér þjónustu sýslumanna, enda eru viðfangsefni þeirra fjölþætt. Sýslumenn fóru fyrstir opinberra stofnana inn á vef Ísland.is með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi: að auka möguleika viðskiptavina á rafrænni þjónustu og sjálfsafgreiðslu, hvar og hvenær sem er. Eftirfarandi þjónustur eru nú rafrænar að hluta eða öllu leyti: Þinglýsingar og vottorð, andlátstilkynningar og skipti dánarbúa, vegabréf og nafnskírteini, ökuskírteini og tengd mál, sakavottorð og sektir og fjölskyldumál. Þá hefur málastofnun og skráning verið sjálfvirknivædd og allar þjónustuleiðir verið færðar á vef Ísland.is.
Innleiðing stafrænnar þjónustu embættanna hefur haft í för með sér mikil og jákvæð áhrif fyrir almenning allan. Á innleiðingartímanum hefur íbúum landsins fjölgað um 40 þúsund og málafjöldi margfaldast, en fjöldi stöðugilda hjá embættunum hefur á sama tíma staðið í stað. Umbreytingin hefur verið leidd af þeim mannauði sem þegar var við störf á embættunum og fjöldi nýrra leiðtoga meðal starfsmanna litið dagsins ljós. Stafræn umbreyting sýslumanna sýnir hvað er hægt að gera í opinberri stjórnsýslu þegar tæknin er nýtt til að skapa raunverulegan samfélagslegan ávinning.
UT Fjölbreytileikafyrirmynd 2025
Mennsk ráðgjöf
Mennsk ráðgjöf fylgir þeirri grundvallarhugsjón í sínu starfi að tæknin eigi að aðlagast mannfólkinu – ekki öfugt. Með þeirri sýn leitast fyrirtækið við að skilja og taka tillit til ólíkra þarfa og upplifana notenda og hagaðila í sínum verkefnum og stuðla þannig að aðgengi, virðingu og fullri þátttöku allra í þróunarferlinu og stefnumótun. Mennsk hefur frá stofnun unnið með opinberum aðilum, félagasamtökum og einkafyrirtækjum en það er ekki síst í samstarfi við opinbera geirann sem Mennsk hefur beitt sér og stuðlað að bættu samfélagi sem tekur tillit til þarfa allra. Mennsk ráðgjöf beitir fjölbreyttum aðferðum í sínu starfi sem einkennast af því að draga fram þarfir notenda, þjónustuþeganna eða hið mennska í tækni, ferlum, þjónustu og upplifun.
UT Sprotinn 2025
EVOLV
Á árinu 2025 hefur viðskiptavinum Evolv fjölgað verulega og viðskiptavinahópurinn er nú orðinn yfir 100 talsins, þar á meðal stærstu fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög landsins. Jafnframt hefur Evolv fjölgað lausnum sínum og eflt framboð sitt til að mæta aukinni eftirspurn. Evolv þjónustar nú flest af stærstu sveitarfélögunum og nær þjónustan til sveitarfélaga þar sem rúmlega 80% íbúa landsins búa.
UT Stafræn almenn þjónusta 2025
Alfreð
Alfreð er vinsælasti atvinnumiðill landsins, að jafnaði með 120.000 virka notendur í mánuði. Alfreð hefur tengt saman fólk og fyrirtæki í meira en áratug og innleitt lausnir sem einfalda lífið, bæði fyrir vinnuveitendur og atvinnuleitendur. Vöruheitið svo samofið hlutverki sínu að í daglegu tali er Alfreð notað sem samheiti fyrir atvinnuleit. Fyrirtæki landsins vita nákvæmlega hvar hagkvæmast er að auglýsa eftir starfsfólki með minni tilkostnaði og tryggja um leið hámarksárangur. Velgengni Alfreðs er engin tilviljun heldur afrakstur stöðugrar þróunarvinnu. Alfreð hefur svarað nýjum þörfum atvinnulífsins með betrumbótum á viðmóti, aukinni skilvirkni kerfa og nýjum lausnum á hverju einasta ári.
UT Stafræn opinber þjónusta 2025
Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkur
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er hjartað í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar þar sem þjónustuhönnun, notendamiðuð þróun og gagnadrifin ákvarðanataka eru höfð að leiðarljósi. Sviðið hefur einfaldað ferla, aukið aðgengi og styrkt þverfaglegt samstarf þannig að borgarbúar fá góða og skilvirka þjónustu. Árið 2025 þróaði og innleiddi sviðið fjölmargar stafrænar lausnir sem bæta samfellu og sjálfsafgreiðslu og færa tíma starfsfólks frá umsýslu yfir í virði fyrir notendur. Þar má nefna Veitu, sameiginlegt umsóknakerfi um fjárhagsaðstoð, SkólaBúa í þágu farsældar barna, notendavæna gervigreindaraðstoð á vef sem hefur dregið verulega úr álagi í þjónustuveri og innleiðing stafræns vinnuafls sem sinnir síendurteknum verkefnum með sjálfvirkum hætti.
UT Fyrirtækið 2025
50skills
50skills hefur þróað framúrskarandi tæknilausn á sviði sjálfvirknivæðingar mannauðsferla. Með tilkomu Journeys frá 50skills er það ekki lengur eingöngu á færi forritara og sérmenntaðra tæknifræðinga að sjálfvirknivæða ferla, heldur þeirra sem bera ábyrgð á ferlunum og vinna í þeim dags daglega.Hugbúnaður 50skills hefur gert íslenskum fyrirtækjum kleift að ná fram verulegum hagræðingum, spara þúsundir klukkustunda af endurtekinni handvinnu svo starfsfólk þeirra geti einbeitt sér að verkefnum sem skapa meiri verðmæti. Fyrir tilstilli 50skills eru mörg íslensk mannauðsteymi í dag leiðandi á heimsvísu í sjálfvirknivæðingu mannauðsferla og eru í samstarfi við 50skills að setja ný viðmið í því hvernig mannauðsteymi nýta upplýsingatækni og gervigreind til að bæta
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með verðlaunin.
---
Hér er yfirlit yfir 3 efstu í hverjum flokki sem voru tilnefnd.