Tölvupóstlistinn
Reglur um notkun tölvupóstlista Skýrslutæknifélags Íslands
Um er að ræða tvo lista, annan með félagsmönnum félagsins og hinn með utanfélagsmönnum.
Á lista félagsmanna er merkt við hvaða faghópum viðkomandi hefur valið að fylgjast með.
- Listarnir eru á verksviði og á ábyrgð framkvæmdastjóra félagsins.
- Mönnum er gefinn kostur á að tölvupóstföngum þeirra sé bætt við póstlistann.
- Menn geta hvenær sem er óskað eftir því að tölvupóstföng þeirra verði felld út af listanum og verður umsvifalaust orðið við þeim beiðnum.
- Allir sem mæta á viðburði á vegum Ský fara sjálfkrafa á póstlista félagsins.
- Póstlistinn verður ekki gerður aðgengilegur öðrum aðilum en starfsmönnum og stjórnarmönnum Ský, og þá eingöngu í tengslum við starfsemi Ský eða nefndir félagsins. Þó er heimilt, að fengnu samþykki stjórnar hverju sinni, að senda út upplýsingar um efni sem ætla má að eigi sértakt erindi til þeirra sem eru á tölvupóstlistanum.
- Listanum verður ekki dreift, hann ekki seldur eða gerður aðgengilegur þriðja aðila.
- Eingöngu framkvæmdastjóri og formaður félagsins mega senda á póstlistann.
Notkun tölvupóstlistanna
Listinn er eingöngu notaður fyrir efni sem tengist starfsemi félagsins, svo sem til að auglýsa ráðstefnur félagsins og minna á þær.
Föst regla er að minna á hverja ráðstefnu og gefa fólki kost á að skrá sig með því að svara póstinum.
Miðað er við að einungis séu sendir tveir tölvupóstar til að auglýsa hvern viðburð til að halda póstsendingum í lágmarki en þó eru nokkrar undantekningar þar frá.
Skráning
Áhugasamir geta skráð sig á póstlistann hér á heimasíðu félagsins eða sent tölvupóst á sky@sky.is