Tölvuvæðing í hálfa öld
- Upplýsingatækni á Íslandi 1964-2014
Í tilefni þess að árið 2014 voru 50 ár frá því að fyrsta alvöru tölvan kom til Íslands árið 1964 var ákveðið að ráðast í það verkefni að taka saman sögu tölvuvæðingar á Íslandi. Sagan var birt í vefútgáfu vorið 2016 en ákveðið var að halda verkefninu áfram og gefa söguna út í prentformi og kom hún út þann 6. apríl 2018.
Bókin ber heitið: „Tölvuvæðing í hálfa öld - Upplýsingatækni á Íslandi 1964-2014“ og er skrifuð af Önnu Ólafsdóttur Björnsson en í ritnefnd voru Arnlaugur Guðmundsson (formaður ritnefndar), Sigurður Bergsveinsson, Þorsteinn Hallgrímsson, Frosti Bergsson, Gísli Már Gíslason, Gunnar Ingimundarson, Vilhjálmur Þorsteinsson og Sigríður Olgeirsdóttir. Ritsjóri var Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský.
Það er skemmst frá því að segja að bókin er skemmtileg aflestrar og fullt af skemmtilegum sögum og staðreyndum um tölvuvæðingu á Íslandi en rétt að taka strax fram að þetta er ekki bók með upptalningu á fyrirtækjum, tækjum eða hugbúnaði á Íslandi. Hægt að nálgast söguna eins og hún fór á vefinn www.sky.is en í bókinni er búið að umorða texta og kafla á mörgum stöðum og myndskreyta. Stefnan er svo að halda áfram að halda utan um þessa merkilegu sögu á vefnum og því tekið við nýju efni til birtingar þar í framtíðinni.
Bókin er seld í völdum verslunum hjá Penninn/Eymundsson og einnig í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi.
Saga tölvuvæðingar á Íslandi er einnig á vef Ský í nánari útfærslu og með viðbótum
2016 Tölvumál - prentútgáfa í haust
Nú erum við í ritnefnd Tölvumála að leita eftir greinum í prentað blað sem kemur út í haust þar sem þemað verður íslenskan og upplýsingatæknin.
Við höfum áhuga á að skoða stöðu íslenskunnar í dag en einnig að líta til framtíðar. Sem dæmi má nefna: Hver er stefna stjórnvalda, menntastofnana og fyrirtækja? Erum við að fylgja þeirri stefnu? Hvað segir unga fólkið? Hvaða mál notar það? Leitað er eftir greinum sem fjalla um upplýsingatækni á breiðum grundvelli en ekki kynningu á vöru eða fyrirtæki. Greinar um annað efni eru auðvitað vel þegnar.
Nafn greinar þarf að vera stutt og laggott og nafn og starfsheiti höfunda(r) að fylgja. Millifyrirsagnir eru mjög æskilegar; þær bæta útlit og framsetningu efnis. Mynd af höfundi(um) er nauðsyn og æskilegt er að hafa einnig aðrar myndir. Eftir að grein hefur verið send á ritstjóra fer hún í yfirlestur, gert er ráð fyrir að höfundar vandi málfar sitt en ritnefnd áskilur sér rétt til að laga augljósar ritvillur.
Æskileg lengd greina í prentútgáfu Tölvumála er 1-2 síður, eða u.þ.b. 1000-1200 orð. Nánar má sjá um frágang greina á vef ský (sky.is) undir Tölvumál.
Gott væri að fá greinar fyrir sumarfrí í lok júní en loka skilafrestur fyrir greinar fyrir prentaða útgáfu er 1. september 2016 á netfangið asrun@ru.is
Þeir sem vilja auglýsa í blaðinu eru beðnir að hafa samband sem fyrst við sky@sky.is þar sem takmarkað pláss er fyrir auglýsingar.
Ef þú þekkir til góðra penna væri vel þegið að benda þeim einnig á að senda greinar í Tölvumál um upplýsingatækni, bæði fyrir blaðið og vefinn okkar en við birtum vikulega pistla á netinu (800 orð).
Einnig stendur til að fjölga í ritnefndinni og nýir meðlimir velkomnir.
UTmessan
UTmessan, sem er stytting á Upplýsingatæknimessan hefur verið haldin af Ský frá árinu 2011.
UTmessan hefur eigin vefsíðu og er þar að finna nánari upplýsingar um viðburðinn.
Allar upplýsingar er að finna á www.utmessan.is
Hvað er UTmessan og fyrir hverja?
UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið haldin árlega frá árinu 2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin hér á landi. Á UTmessuna mæta öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.
Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsingatækninnar og þar sést svart á hvítu að allir hafa möguleika á að starfa í tölvugeiranum. Starfssviðið er bæði breitt og fjölbreytt og hentar bæði konum og körlum.
Upplýsingatæknimessan og UTmessan eru skráð vörumerki hjá Einkaleyfastofu og eru í eigu Skýrslutæknifélags Íslands. Öll notkun og vísun í vörumerkin er óheimil án sérstaks leyfis eiganda.Í því felst m.a. réttur sem settur er í vörumerkjalögum (sjá lög m vörumerki nr. 45/1997 með síðari breytingum) gefur eiganda vörumerkis einkarétt á að nota merkið hér á landi og getur hann þá bannað öðrum að nota í atvinnustarfsemi merki sem eru eins eða lík vörumerki hans. Nánari uppl: http://www.els.is/merki/vorumerki/
Félagar Ský
Félagar í Ský eru nú um 800 og koma úr fjölbreyttri flóru fyrirtækja á Íslandi sem á einhvern hátt tengjast upplýsingatækni. Flestir eru félagar á vegum fyrirtækja en færri eru á eigin vegum í Ský. Aðild er skráð á nafn félaga og þannig er nánd við félagsmenn mun meiri en ef fyrirtækin sem slík væru skráð. Nánari upplýsingar um tegundir félagsaðildar. Ef þú ert ekki viss hvort þú sért skráður félagi eða ekki er öllum fyrirspurnum svarað í gegnum sky@sky.is
Allir félagsmenn geta skráð sig í faghópa félagsins og eru engin takmörk á hvað þeir skrá sig í marga hópa. Öllum félögum er frjálst að taka þátt í starfi ritnefndar og best að senda tölvupóst á ritstjórann okkar hana Ásrúnu (asrun@ru.is) ef áhugi er á að taka þátt í útgáfu Tölvumála. Við bendum félagsmönnum einnig á að setja sig í samband við skrifstofu Ský hafi þeir áhuga á að taka þátt í undirbúningsnefndum viðburða.
Ský stendur fyrir um 30 viðburðum árlega af ýmsum toga, þó er UTmessan sá fyrirferðarmesti. Þeir sem eru skráðir í Ský fá veglegan afslátt á alla viðburði á vegum félagsins. Auk þess fá þeir sent til sín árlega prentútgáfu Tölvumála.
Til viðbóðtar eru oft ýmis tilboð eru í gangi til félagsmanna Ský svo sem afsláttur á viðburði hjá öðrum, námskeið og fleira og verða öll tilboð skráð á þetta svæði þannig að auðvelt er að sjá í fljótu bragði hvað er í boði.
Eftirfarandi tilboð eru í gangi fyrir félagsmenn Ský:
"Mannamót" eru opin félagsmönnum Ský og eru haldin síðasta miðvikudag í mánuði yfir vetrartímann.
Nánar um það hér