Skip to main content

Ársskýrslur

Aðalfundargerð 2026
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2025

Aðalfundargerð 2025
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2024

Aðalfundargerð 2024
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023

Aðalfundargerð 2023
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2022

Aðalfundargerð 2022
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2021

Aðalfundargerð 2021
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2020

Aðalfundargerð 2020
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2019

Aðalfundargerð 2019
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2018

Aðalfundargerð 2018
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2017

Aðalfundargerð 2017
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2016

Aðalfundargerð 2016
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2015

Aðalfundargerð 2015
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2014

Aðalfundargerð 2014
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2013

Aðalfundargerð 2013
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2012

Aðalfundargerð 2012
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2011

Aðalfundargerð 2011
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2010

Aðalfundargerð 2010
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2009

Aðalfundargerð 2009
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2008

Aðalfundargerð 2008
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2007

Aðalfundargerð 2007
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2006

Aðalfundargerð 2006
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2005

Aðalfundargerð 2005
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2004

Aðalfundargerð 2004
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2003

Aðalfundargerð 2003
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2002

Aðalfundargerð 2002
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2001

Aðalfundargerð 2001
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2000

Siðareglur


Góðir siðir teljast:

  • að koma heiðarlega fram við viðskiptavin, seljanda búnaðar, vinnuveitanda, launþega, keppinauta, samstarfsaðila, opinbera aðila eða almenning í landinu og hvorki skaða viljandi né nota vafasama starfshætti;
  • að dreifa ekki upplýsingum sem veittar eru í trúnaði eða misnota þær;
  • að virða höfundarétt, vörumerki, einkaleyfi og annan huglægan rétt;
  • að upphefja ekki sjálfan sig á kostnað annarra og taka tillit til annarra;
  • að beita ekki illkvittni eða röngum ásökunum;
  • að hlíta lögum og reglum um viðskiptahætti;
  • að taka ekki við þóknunum eða fríðindum frá þriðja aðila nema samþykki verkkaupa komi til, þegar unnið er sem verktaki eða ráðgjafi.


Æskilegt er talið:

  • að auka færni sína sem mest á hverjum tíma;
  • að auka orðstír félagsins;
  • að miðla af faglegri reynslu sinni á vettvangi félagsins.

 

Samþykkt á aðalfundi 1992

Félagssamþykktir

Félagssamþykktir

1. Nafn og aðsetur
Heiti félagsins er Skýrslutæknifélag Íslands, stytt sem Ský. Aðsetur félagsins er í Reykjavík.

2. Tilgangur
Ský er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni.  
Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni.

3. Hlutverk
Hlutverk Ský er að bjóða uppá fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því öfluga þekkingar- og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins og veita þannig félagsmönnum sínum virðisauka og vegsemd.

4. Markmið

Markmið Ský eru:

·          að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri notkun hennar
·          að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna
·          að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni
·          að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni
·          að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni

5. Félagsaðild
Aðild að félaginu geta átt stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Aðild stofnana og fyrirtækja er bundin einstaklingum á þeirra vegum. Hver skuldlaus félagi fer með eitt atkvæði á fundum félagsins. Félagar skulu fara að lögum og siðareglum félagsins.        

6. Félagsgjöld og fjármál
Aðalfundur ákveður félagsgjöld fyrir eitt ár í senn.
Starfs- og reikningsár félagsins er almanaksárið. Félagsgjöld til félagsins skulu greidd fyrir 1. apríl. Framkvæmdastjóri annast fjárreiður félagsins í samráði við gjaldkera þess.  Endurskoðaða reikninga félagsins skal leggja fyrir aðalfund til samþykktar. Reikningar skulu vera aðgengilegir félagsmönnum á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund. 

7. Stjórn
7.1 Stjórnskipulag

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Fundurinn kýs félaginu stjórn sem annast málefni þess milli aðalfunda. Aðalfundur kýs tvo skoðunarmenn reikninga félagsins. Aðalfundur setur félaginu siðareglur og kýs siðanefnd. Aðalfundur kýs ritstjóra skv. gr. 8. Stjórn félagsins skipar starfsnefndir eftir því sem hún telur ástæðu til. Orðanefnd skal skipuð á fyrsta fundi stjórnar. Stjórn félagsins tilnefnir fulltrúa fyrir félagið í nefndir, stjórnir og/eða ráð í öðrum félögum, samtökum eða á vegum opinberra aðila. 

7.2 Félagsstjórn
Stjórn félagsins skipa sjö einstaklingar, allir kjörnir til tveggja ára og skulu þeir ganga úr stjórninni á víxl. Kjósa skal formann sérstaklega á hverju ári úr hópi kjörinna stjórnarmanna. Segi stjórnarmaður lausu sæti sínu á kjörtímabilinu skal kjósa á næsta aðalfundi stjórnarmann í stað hans til loka kjörtímabils hans. Að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum og kýs varaformann, ritara og gjaldkera. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundum ræður atkvæði formanns. Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar stjórninni eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund. Stjórn skal í upphafi starfsárs setja sér starfsáætlun í samræmi við markmið félagsins.

8. Nefndir
8.1 Siðanefnd

Siðanefnd skal skipuð þremur einstaklingum og einum til vara, kjörnum til eins árs í senn. Tengist nefndarmaður meintu siðbroti telst hann vanhæfur og tekur varamaður sæti hans í nefndinni og situr hann þar til málinu lýkur. Hlutverk siðanefndar er að úrskurða í málum viðvíkjandi meintum brotum á siðareglum félagsins. Siðanefnd tekur upp mál eftir ábendingum eða samkvæmt kærum og er heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði. Úrskurðir siðanefndar eru öllum opnir. 

8.2 Ritstjórn
Ritstjórn skal skipuð ritstjóra, sem kosinn skal á aðalfundi til eins árs í senn, og ritstjórnarmönnum sem stjórn félagsins skipar í samráði við ritstjóra. Ritstjórn velur vararitstjóra úr sínum hópi. Hlutverk ritstjórnar er að ritstýra Tölvumálum, tímariti félagsins, og annarri útgáfu á vegum þess. 

8.3 Orðanefnd
Stjórn félagsins skipar formann orðanefndar og aðra nefndarmenn í samráði við hann, til tveggja ára í senn.
Hlutverk orðanefndar er að efla og móta íslenskan orðaforða og íslenskt málfar í upplýsingatækni.

9. Aðalfundur
Aðalfund skal halda eigi síðar en 28. febrúar ár hvert og skal boða hann bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með 14 daga fyrirvara. 

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrslur nefnda og starfshópa
3. Tilnefning heiðursfélaga
4. Reikningar félagsins
5. Lagabreytingar
6. Ákvörðun félagsgjalda
7. Stjórnarkjör
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
9. Nefndakjör
10. Önnur mál

Kosið skal skriflega sé þess óskað. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað.

10. Félagsfundur
Almenna félagsfundi skal stjórnin halda um félagsmálefni þegar ástæða þykir til. Til félagsfunda skal boða með tilkynningu til félagsmanna eða auglýsingu. 

11. Aukaaðalfundur
Til aukaaðalfundar skal boðað þegar stjórn félagsins þykir ástæða til eða þegar a.m.k. 50 félagsmenn óska þess skriflega. Á slíkum fundi skal fjallað um störf stjórnar og/eða nefnda félagsins sem annars væri fjallað um á reglulegum aðalfundi félagsins. Til aukaaðalfundar skal boðað með sama hætti og til aðalfundar. Í fundarboði skal geta þess umræðuefnis sem tekið skal fyrir á fundinum. Aukaaðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað. Á aukaaðalfundi skulu aðeins rædd og tekin til umfjöllunar þau mál sem fram koma í fundarboði. 

12. Breytingar á félagssamþykktum
Tillögur um breytingar á félagssamþykktum skal senda stjórn félagsins fyrir lok starfsárs og skulu þær lagðar fyrir næsta aðalfund. Fram komnar tillögur og/eða tillögur stjórnar til breytinga á félagssamþykktum skulu kynntar félagsmönnum í fundarboði. Breyting á félagssamþykktum öðlast ekki gildi nema hún sé samþykkt með minnst 2/3 hlutum greiddra atkvæða fundarmanna á löglega boðuðum aðalfundi. 

13. Félagsslit
Aðalfundur einn getur slitið félaginu. Með tillögu um félagsslit skal farið sem um breytingu á félagssamþykktum væri að ræða. Við félagsslit skal eignum félagsins ráðstafað í samræmi við markmið félagsins. 

Þannig samþykkt á aðalfundi Ský þann 25. febrúar 2021.