Fjarskipti á náttúruhamfaratímum
Fjarskipti á náttúruhamfaratímum
Hádegisfundur á Grand Hótel 12. september kl 12:00 – 14:00
Taktu þátt í umræðunni á Twitter: @SkyIceland #fjarskipti
Fjarskipti eru sjaldan eða aldrei mikilvægari en þegar náttúruhamfarir eiga sér stað. Með aukinni útivist og fjölgun ferðamanna verður æ flóknara að ná til þeirra sem kunna að vera í hættu hverju sinni auk þess sem koma þarf skilaboðum á skömmum tíma til íbúa á þeim svæðum sem eru í hættu. Til að koma slíkum skilaboðum á framfæri er treyst á örugg fjarskipti. En höfum við áætlanir tiltækar til verksins? Af hverju er alltaf hægt að hringa í 112? Verða fjarskiptakerfi landsins til reiðu þegar mest á reynir? Á hvaða fjarskipti treystir Landsbjörg í björgunaraðgerðum ? Hvernig virkar 112 „appið“?
Faghópur um fjarskiptamál boðar til fundar um fjarskipti á náttúruhamfaratímum. Á fundinn mæta fagaðilar og kynna sín sjónarmið og upplýsa okkur um það við hverju má búast þegar náttúran minnir á sig næst. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um efnið.
Dagskrá:
11:50 – 12:00 Afhending ráðstefnugagna
12:00 – 12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 – 12:35 Tiltækar viðbragðsáætlanir og viðbragð við náttúruhamförum
Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra
12:35 – 12:50 Áreiðanleiki og uppbygging almennra fjarskiptakerfa landsins
Halldór Guðmundsson, forstöðumaður þróunar hjá Mílu
12:50 – 13:05 TETRA - Áreiðanleiki og útbreiðsla. Hvernig virkar 112 „appið“?
Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdarstjóri Neyðarlínunnar
13:05 – 13:20 GSM Boðkerfið – hvernig virkar það og hvenær er það er virkjað?
Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra
13:20 – 13:35 Hvernig er Landsbjörg tækjum búin og á hvernig fjarskipti treysta þau?
Daníel Eyþór Gunnlaugsson,
Fjarskiptaráð björgunarsveita/Slysavarnarfélagið Landsbjörg
13:35 - 14:00 Fundi slitið
Fundarstjóri: Ari Trausti Guðmundsson
Matseðill: Pönnusteiktur þorskur með grænmetis risotto og hollandaissósu. Kaffi/te og konfekt.
Undirbúningsnefnd: Stjórn fjarskiptahóps Ský
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir fólk utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
-
12. september 2012