Eldgos og UT
Hádegisfundur
23. september 2014 kl. 12-14
Grand hóteli
“Eldgos og UT - Ógnir, viðbrögð og tækifæri”
Twitter: @SkyIceland #EldgosUT
Fjallað verður um sérstaka íslenska snertifleti upplýsingatækninnar við eldgos. Leitað verður svara við eftirtöldum spurningum:
-
Hvaða hættur stafa af eldvirkni fyrir íslenskt upplýsingatæknisamfélag og rekstur upplýsingakerfa?
-
Hvernig notum við tæknina til að spá fyrir um eldgos og bregðast við þeim?
-
Hvaða tækifæri og tækniforskot felast í að nota upplýsingatækni vegna eldvirkni?
Fundurinn er ætlaður stjórnendum, frumkvöðlum og öðrum þeim sem kynnast notkun upplýsingatækninnar vegna eldvirkni og náttúruváa og þeim tækifærum sem í því felast fyrir tölvugeirann.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Áhættumat tölvuvera á umbrotstímum
Kristján H. Hákonarson, Advania
12:40-13:00 Náttúruvá og kerfi Mílu
Benedikt Rúnarsson, Míla
13:00-13:20 Spálíkön, viðbrögð og tækifæri vegna eldgosa
Sigrún Karlsdóttir og Vigfús Gíslason, Veðurstofu Íslands
13:20-13:40 Stjórnun í hamfaraaðgerðum með upplýsingatækni
Guðbrandur Örn Arnarson, SarEye
13:40-14:00 Tölvutækni nýtt við náttúruvá
Úlfar Linnet, Landsvirkjun
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Ragnheiður H. Magnúsdóttir, Hugsmiðjan.
Undirbúningsnefnd: Ragnheiður Magnúsdóttir, Þorvarður Kári Ólafsson, Ólafur Tr. Þorsteinsson og Arnheiður Guðmundsdóttir
Matseðill: Smjörsteiktur karfi grænmeti, hrísgrjónum og chili-engifer svartbaunasósu.
Konfekt / kaffi / te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
23. september 2014