Í takt við tímann -ráðstefna um þjónustuver
 
  Í takt við tímann          
 Hugbúnaðarlausnir fyrir þjónustu- eða símaver og þjónustuborð tölvudeilda
 Ráðstefna á Hótel Nordica föstudaginn 5. maí 2006 
 
 Kynntar voru helstu hugbúnaðarlausnir sem ætlaðar eru fyrir þjónustu- eða símaver (e: Call Center eða Contact Center) og þjónustuborð tölvudeilda (e: Help desk).   
Jafnframt sögðu notendur frá sinni reynslu af notkun hugbúnaðarins – skýrðu frá því hvers vegna viðkomandi lausn var valin, sögðu frá helstu kostum og göllum og lögðu mat á ávinninginn við það að nota þá lausn sem þeir völdu.   
 Við val á hugbúnaðarlausnum vakna margar spurningar og leitast var við að svara m.a. eftirfarandi spurningum:
Hvernig var staðið að þarfagreiningu og vali á hugbúnaðarlausnum?
Hvað þarf að hafa í huga við val á hugbúnaði?
Er hægt að leysa allt með einni lausn?
Hvaða lausnir henta best á mínum vinnustað?
Hvað segja notendur, kostir og gallar?
Hversu langan tíma tók að innleiða lausnina?
Hvaða staðlar skipta máli í þessu umhverfi?
Drög að dagskrá:
| 12:45 | Skráning þátttakenda | 
| 13:00 | Setning ráðstefnu | 
| 13:05 | Lausnir fyrir þjónustuver -glærur- | 
| 13:35 | Skilvirkari þjónusta með Altiris Helpdesk; lýsing á virkni og reynslu viðskiptavina með ólíkar þarfir -glærur- | 
| 14:05 | Swyx, eina IPsímkerfalausnin sem þú þarft -glærur- | 
| 14:35 | Kaffihlé | 
| 15:05 | Cisco Unified IPCC - heildstæð lausn -glærur- | 
| 15:35 | Oracle Service Desk Solution -glærur- | 
| 16:05 | Avaya | 
| 16:35 | Knova - samhæfð þekkingarlausn fyrir þjónustuver og sjálfsafgreiðslu á netinu. -glærur- | 
| 16:55 | Ráðstefnuslit | 
| 17:00 | Léttar veitingar | 
   Ráðstefnustjóri var Dagný Halldórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Neyðarlínunni
 
 Í undirbúningsnefnd voru Ólafur Aðalsteinsson, Eggert Ólafsson og Ragnheiður Guðmundsdóttir
 
-             
    
        5. maí 2006