Skip to main content

OLED sjónvarpstæki árið 2009

OLED sjónvarpstæki gefa mjög góða liti og eru svo þunn að flatsjónvarpstækin í dag virka eins og ofvaxnir hlunkar. Leiðin frá  frumgerð að framleiðslu er búin að vera löng og ströng og kannski ástæða til að hafa fyrirvara á yfirlýsingu um að þetta komi í verslanir á árinu 2009 en engu að síður verða þetta flott tæki.

Sjá nánar 

 

NFC farsímar í stað greiðslukorta

NFC eða Near Field Communications er afar skammdræg þráðlaus tækni sem er að rata í farsíma og er ætluð til að hægt sé að nota símana í stað kreditkorta eða til auðkenningar. Núna er verið að prófa frumgerð Nokia síma með NFC í London  og Gadget Inspectors hjá Daily Telegraph skoðuðu hvernig þetta virkar.

Sjá nánar og NFC 

Örblogg orðið fyrirferðamikið

Twitter er dæmi um vef sem snýr að fyrirbæri sem kalla má örblogg eða microblogging sem er að geta sent texta beint frá farsíma inn á bloggsíðu án þess að nota tölvu. Það leiðir til að takmark er á stærð færslunnar en þetta er vinsælt og fyrirhafnarlítið. Þetta hefur skotið rótum vestanhafs í kosningabaráttunni sem þar er á ferðinni og hefur ýmsa praktíska vinkla.

Sjá nánar  og Twitter 

Notkun á snertiskjám í farsímum rýkur upp

Apple iPhone er búinn að ryðja brautina og skriða af símum hefur fylgt í kjölfarið sem stjórna má með snertiskjám. Einnig eru að koma fram á sjónarsviðið tæki sem eru í raun afar smáar útgáfur af einmenningstölvum. Að sögn nota eigendur iPhone símana sína meira til að fara á Netið en til að hringja og það er til merkis um að markaður er til fyrir minnstu tölvurnar. 

Sjá nánar 

Paypal mun loka á ótrygga vafra

Paypal mun herða öryggið með því að loka á gamla vafra sem styðja ekki nýrri öryggistækni og er þetta liður í að koma í veg fyrir svokallaðar netveiðar (phishing) en það þýðir að vefur er að sigla undir fölsku flaggi og herma sem dæmi eftir Paypal. Það kom Paypal á óvart hversu gamlir vafrar eru í gangi. meira að segja Internet Explorer 3.

Sjá nánar