Skip to main content

Stefnir í hart milli Microsoft og Yahoo!

Yahoo! hafnaði öðru kauptilboði Microsoft og segir að það sé of lágt. Forstjóri Microsoft segir hinsvegar að tilboðið sé "rausnalegt" og fyrirtækið verði að gjöra svo vel að taka því, annars taki annað við. Yahoo er í algjörri varnarstöðu og hefur svarað bréflega á þá leið að samruni sé ekki heppilegur, hvorki fyrir fyrirtækið né hluthafana.  

Sjá nánar 

Intel Atom örgjörvar halda innreið sína í smátæki

Intel lítur á Atom örgjörvalínu sína sem jafn mikilvægt skref og Pentium var á sínum tíma. Þessar smávöxnu græjur nota mun minni orku en núverandi örgjörvar í minni fartölvum. Þreifingar eru hjá  ýmsum framleiðendum með notkun kubbanna en augu manna beinast einkum að einhverskonar millistigi mili lófatölva og minni fartölva. 

Sjá nánar 

ESB mun setja reglur til að samræma farsímanotkun í flugvélum

Núna þegar búið er að gefa grænt ljós á notkun farsíma í flugvélum mun Evrópusambandið setja reglur til að tryggja samræmingu a þjónustunni innan sambandsins (og EES þá væntanlega líka). Fylgst verður með verðlagningunni og sagt til um úthlutun leyfa og notkun þegar flogið er yfir lönd. Jafnframt munu verða skilgreind ýmis tæknileg atriði.

Sjá nánar 

Heilsurækt með Nintendo Wii

Nýjasta viðbótin við Nintendo Wii leikjatölvuna er bretti sem hefur þrýstiskynjara og er tengt þráðlaust við tölvuna og er hluti af forritapakka þar sem hægt er að gera allskonar líkamsræktaræfingar.  Meðal annars er hægt að vera á skíðum og herma eftir húlahring, auk hefðbundinna æfinga. Gadget Inspectors dúettinn hjá Daily Telegraph prófaði tækið og þau voru hrifin.

Sjá nánar 

Breyttir tímar hjá Joost vefsjónvarpinu

Þegar fréttist að stofnendur Skype símaþjónustunnar ætluðu að gera samskonar hluti í vefsjónvarpi voru  raddir sem sögðu að Joost gæti þýtt endalok hefðbundins sjónvarps. Þó ekki sé langur tími liðinn er staðan aldeilis önnur og Joost þarf núna að ganga í gegnum "enduruppröðun" eins og það er orðað. Ein hindrun á leið Joost er þeirra eigin spilari en aðrir hafa kosið að sleppa slíku og nota Flash-spilara inni í vöfrum. 

Sjá nánar