Microsoft undir í atkvæðagreiðslu vegna staðals
Microsoft tókst ekki að tryggja sér nauðsynlegan meirihluta atkvæða í tækninefndinni INCITS þar sem kosið var um hvort nefndin ætti að leggja til innan ISO að OpenXML skjalasnið Microsoft yrði alþjóðastaðall. Mikið er lagt undir til að ná þessu marki þar sem Open Document Format, ODF, skjalasniðið í Open Office er þegar orðið að ISO staðli, og Microsoft vill að sitt snið fái líka þann stimpil.