Toshiba markaðssetur ódýrari HD-DVD spilara
Toshiba hefur sett á markað nýjan háskerpuspilara fyrir HD-DVD diska sína og kostar hann innan við USD 500. Hann er sá fyrsti á því verði sem ræður 1080p upplausn á mynd. Heildarsala á HD-DVD diskum er komin uppundir milljón eintök.