ESB: gjöld fyrir SMS milli landa verða að lækka
Núna er um ár liðið frá því Evrópusambandið beitti tilskipun á aðildaþjóðirnar til að lækka svokölluð reikigjöld í farsímum og núna á að taka fyrir SMS og setja þak á reikigjöldin. Áður hafði verið hvatt til þess að fjarskiptafyrirtækin gerðu þetta sjálfviljug en undirtektir hafa litlar verið og því stefnir í aðgerðir í Brussel.