Skip to main content

3G iPhone þjarmar að GPS tækjaframleiðendum

Undanfarin misseri hafa verið blómaskeið þeirra sem framleiða GPS tæki og Garmin hefur þar leitt markaðinn með um 50% hlutdeild. Samt sem áður hefur verð hlutabréfanna verið að falla og þar á bæ þykja það trúlega óyndislegar fréttir að heyra hversu stórt hlutverk innbyggður GPS móttakari í 3G iPhone símanum spilar.

Sjá nánar

Bill hættir, hvað tekur við?

Föstudagurinn 20. júní boðar þau tímamót í lífi Bill Gates að það er seinasti vinnudagur hans í fullu starfi hjá Microsoft. Fyrirtækið segir að það hafi engin áhrif þar sem þetta hefur staðið til í tvö ár. Áhrifin eru kannski meira sálræn þar sem það einkennir tölvufyrirtæki að stofendurnir eru einnig leiðtogar árum saman. Allt gengur vel hjá Microsoft en áherslur eru etv. að breytast með Google sem nýjan risa og keppinaut.

Sjá nánar

Verizon tekur stórt stökk upp í háhraðaframboði

Bandaríska fjarskiptafyrirtækið Verizon er að markaðssetja breiðbandsþjónustu sem býður allt að 50 Mbit/sek. í niðurhali og 20 Mbit/sek upp með tilheyrandi ofur-afköstum í gagnaflutningi. Fyrirtækið segir að þörfin fyrir meiri hraða sé nánast óseðjandi og mikil aukning að verða eða í vændum á háskerpumyndefni sem þarf þetta mikla bandbreidd. 

Sjá nánar

BNA: 40% fagfólks fjármagnar eigin vinnutæki

Könnun sem fór fram vestanhafs leiddi í ljós að 40% fagfólks kaupir sínar eigin fartölvur og / eða farsíma og skyld tæki til vinnunota, þar sem vinnuveitandinn lætur þau ekki í té. Fyrirtæki eru oft að spara og eru tvístígandi yfir því hvort viðkomandi þurfi búnað eða ekki og hver framleiðniaukninginn gæti orðið.

Sjá nánar

8 megapixla farsími á markað

Sony Ericsson mun setja 8 megapixla farsíma á markaðinn í haust og þar með skáka flestum, ef ekki öllum keppinautum hvað myndeiginleika varðar. Einnig má merkja myndirnar með staðsetningu út frá GPS. Síminn er að auki hlaðinn ýmsum eiginleikum og keppir við dýra síma annarra farsímaframleiðenda. 

Sjá nánar