
UT-verðlaunin eru heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi.
Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin og eru þau að danskri fyrirmynd. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2010.
Kallað er eftir tilnefningum og geta allir sent inn tillögur. Hver aðili getur þó aðeins sent inn eina tilnefningu í hverjum flokki. Tilnefningar skulu vera rökstuddar í texta (ekki að vísa eingöngu á tengla).
Hægt er að tilnefna einstakling, fyrirtæki eða verkefni sem hefur skarað fram úr á sviði upplýsingatækni, skapað verðmæti og auðgað líf Íslendinga með hagnýtingu upplýsingatækni. Áhersla er lögð á að framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti.
Til viðbótar við UT-verðlaunin eru veitt verðlaun í nokkrum flokkum fyrir afrek síðasta árs:
- UT-Sprotinn: fyrir fyrirtæki sem hafa verið starfandi síðastliðin 1-6 ár og eru að bjóða lausnir sem hafa vakið athygli.
- UT-Stafræna opinbera þjónustan: ætlaður fyrir lausnir á opinbera markaðnum sem skara fram úr og einfalda daglegt líf fólks. Vefsíður, öpp og rafræn þjónusta hvers konar falla undir þennan flokk.
- UT-Stafræna almenna þjónustan: ætlaður lausnum á almenna markaðnum sem skara fram úr og einfalda daglegt líf fólks. Vefsíður, öpp og rafrænar þjónustur hvers konar falla undir þennan flokk.
- UT-Fyrirtækið í flokki stærri fyrirtækja > 50 starfsmenn: fyrir stór fyrirtæki sem nýta sér upplýsingatækni í sinni starfsemi og hafa náð góðum árangri með einum eða öðrum hætti á árinu á innlendum og/eða erlendum vettvangi með upplýsingatækni að leiðarljósi.
- UT-Fyrirtækið í flokki minni fyrirtækja < 50 starfsmenn: fyrir minni fyrirtæki sem nýta sér upplýsingatækni í sinni starfsemi og hafa náð góðum árangri með einum eða öðrum hætti á árinu á innlendum sem erlendum vettvangi með upplýsingatækni að leiðarljósi.
- UT-Fjölbreytileikafyrirmynd: til að vekja athygli á því sem vel er gert í þágu fjölbreytileika og gott fordæmi.
Árlega skipar stjórn Ský valnefnd sem hefur sérþekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni. Valnefnd samanstendur af tveimur síðustu UT-verðlaunahöfum, fulltrúum háskóla, fulltrúa stjórnar Ský ásamt starfandi framkvæmdastjóra Ský. Valnefndin getur einnig sent inn tilnefningar.
Eftir að fresti til tilnefninga lýkur velur valnefnd þann aðila sem þykir skara framúr og skal hún vera einróma um valið og rökstyðja það vel. Hægt er að senda inn tilnefningar hvenær sem er á netfangið sky@sky.is
















