Skip to main content

Rafrænir reikningar

Framtíðin er núna - Rafrænir reikningar

Skýrslutæknifélag Íslands, Icepro og FUT munu halda hálfsdagsráðstefnu um rafræna reikninga á Grand hótel fimmtudaginn 30. apríl 2009 frá kl. 13:00-16:15

Viðfangsefni ráðstefnunnar er þróun og staða mála er varðar  innleiðingu á rafrænum reikningi í íslenskt viðskiptaumhverfi.  Fjallað verður um tæknilegan undirbúning, væntan ávinning, viðhorf og þátttöku hugbúnaðarfyrirtækja, ofl.

Reynslusögur verða sagðar og viðfangsefnið nálgast frá sem flestum hliðum.  Meðal spurninga sem leitast verður við að svara á ráðstefnunni eru:
  •     Hvað er rafrænn reikningur?
  •     Hver er ávinningurinn af að rafvæða reikninga?
  •     Hvaða kröfur eru gerðar til rafræns reiknings?
  •     Hverjar eru hindranirnar?
  •     Kemur XML í stað EDI?

Dagskrá:

12:45   Skráning þátttakenda
13:00   Ráðstefnustjóri opnar ráðstefnuna
13:05 “Ávinningurinn af rafrænum reikningum'' Einar Sigurðsson nýr forstjóri Mjólkursamsölunnar
13:20 ''Þokan á heiðinni: Staða rafrænna viðskipta á Íslandi'' Arnaldur Axfjörð ráðgjafi hjá Admon, sjá glærur
13:40 “Rafrænn reikningur – eiginleikar, ávinningur og kröfur“ Georg Birgisson, starfsmaður CEN/BII 
  vinnuhóps, sjá glærur
14:00 “Aðkoma hugbúnaðarfyrirtækja að innleiðingu rafrænna reikninga“ Hjörtur Þorgilsson
  varaformaður Icepro, sjá glærur
14:15 “Lagarammi um rafræna reikninga” Bragi Freyr Kristbjörnsson, viðskiptalögfræðingur frá
  Ríkisskattstjóra, sjá glærur
14:35   Kaffihlé
14:55 ''Uppskerutíminn nálgast” Stefán Kjærnested varafjársýslustjóri hjá Fjársýslu ríkisins, sjá glærur
15:10 “Rafræn innkaup” Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri innkaupa- og vöru-
  stjórnunarsviðs skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga LSH, sjá glærur
15:25 “Hlutverk bankanna” Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans,
  sjá glærur
15:40 "Reynsla Símans af rafrænum reikningum“ Kristján Jónsson innkaupastjóri Símans, sjá glærur
15:55   Samantekt ráðstefnustjóra og pallborðsumræður 
16:15   Ráðstefnu slitið

Ráðstefnustjóri: Laufey Ása Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustulausna hjá Skýrr

Pallborð skipa: Arnaldur Axfjörð ráðgjafi hjá Admon, Georg Birgisson, starfsmaður CEN/BII vinnuhóps, Heimir Jónsson upplýsingastjóri hjá Parlogis hf., Hjörtur Þorgilsson varaformaður Icepro og Stefán Kjærnested varafjársýslustjóri hjá Fjársýslu ríkisins

Í undirbúningsnefnd eru: Friðbjörn Hólm Ólafsson frá Símanum, Hjörtur Þorgilsson frá ICEPRO, Rúnar Már Sverrisson frá Logum/FUT og Þórhildur Hansdóttir Jetzek frá Skýrr

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský, Icepro og FUT er 6.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er  8.500 kr.
Þátttökugjald fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis er 3.500 kr.


IMG 1582
IMG 1583
IMG 1584
IMG 1585
IMG 1586
IMG 1587
IMG 1588
IMG 1589
IMG 1590
IMG 1591
IMG 1592
IMG 1593
IMG 1594
IMG 1595
IMG 1596
IMG 1597
IMG 1598
IMG 1599
IMG 1600
IMG 1601
IMG 1602
IMG 1603
IMG 1604
IMG 1605
IMG 1606
IMG 1607

  • 30. apríl 2009