Skip to main content

Aðalfundur Fókus ásamt fræðslufundi

Fræðslufundur á  vegum Fókus þann 1. desember 2011 kl. 16.15 – 17.-15
í húsnæði TM Software að Borgartúni 37

Fundurinn er ókeypis og opinn öllum – þarf ekki að skrá sig fyrirfram

Jóhanna F. Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur MS og verkefnastjóri þróunar og gæðamála á Heilbrigðisstofnun Vesturlands mun
halda erindi sem nefnist:

Rafræn sjúkraskrá á Heilbrigðisstofnun Vesturlands – sameining og samþætting 
Hver er ávinningurinn?

Í upphafi árs 2010 þegar átta heilsugæslustöðvar og heilbrigðisstofnanir á Vesturlandi voru sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Vesturlands varð til sameignleg rafræn sjúkraskrá fyrir allt svæðið. Farið verður yfir undirbúning, innleiðingu, samræmingu verklags og sagt frá hverju sameining  sjúkraskránna hefur breytt nú tæpum tveimur árum síðar.

Að fræðslufundi loknum verða léttar kaffiveitingar og síðan verður boðið til aðalfundar Fókus kl. 17.20 – 18.00  á sama stað. 
----------------------------------------------------------------------------------------

 Aðalfundur Fókus félags í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
þann 1. des. 2011 kl. 17.20 -18.00 í sal TM Software að Borgartúni 37

Fundurinn er opinn félagsmönnum Ský sem eru í FÓKUS. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf skv. stofnsamþykktum Fókus.

Fyrir fundinum liggur eftirfarandi breytingartillaga:

7. grein

Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skipa 5 félagar og tveir til vara kosnir á aðalfundi félagsins. Formaður skal kosinn sérstaklega. Í stjórn eru auk formanns, ritari sem jafnframt er varaformaður og þrír meðstjórnendur. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára og skulu ganga úr stjórn á víxl. Varamenn skulu kosnir til eins árs. Ef stjórnarmaður gengur úr félaginu eða hættir stjórnarstörfum tekur varamaður sæti hans. Stjórn félagsins skal vera þannig skipuð að hún endurspegli sem best þekkingu og starfssvið félaga í félaginu. Sama skal gilda um varamenn. 

Breytingartillaga:

7. grein

Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skipa 5 félagar og tveir til vara kosnir á aðalfundi félagsins. Formaður skal kosinn sérstaklega. Í stjórn eru auk formanns, ritari sem jafnframt er varaformaður og þrír meðstjórnendur. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára og skulu ganga úr stjórn á víxl. Varamenn skulu kosnir til eins árs. Ef stjórnarmaður gengur úr félaginu eða hættir stjórnarstörfum á starfsárinu tekur varamaður sæti hans. Komi upp sú staða að stjórnarmaður þarf að víkja eftir eitt ár í stjórn, skal kjósa stjórnarmann til eins árs í hans stað áður en gengið er til kosninga um aðra stjórnarmeðlimi.  Stjórn félagsins skal vera þannig skipuð að hún endurspegli sem best þekkingu og starfssvið félaga í félaginu. Sama skal gilda um varamenn. 

Samkvæmt samþykktum Fókus skal kjósa um eftirfarandi sæti og er óskað eftir framboðum í þau:
a) formann -   aðeins kosið til eins árs
b) tvo menn í aðalstjórn - til 2 ára
c) tvo varamenn -  kosnir til eins árs

  • Tveir aðalmenn sitja til tveggja ára voru kosnir á síðasta aðalfundi og eiga því eitt ár eftir af tímabili sínu og eru ekki í kjöri nú. Það eru þau Ásgerður Magnúsdóttir og Bjarni Þór Björnsson. Valgerður gefur ekki kost á sér sem formaður áfram. Benedikt Benediktsson gefur ekki kost á sér áfram (í sæti til 2 ára). Aðrir í stjórn gefa kost á sér áfram.
  • Bent skal á að skv. stofnsamþykktum Fókus skal samsetning stjórnar og varastjórnar endurspegla sem best þekkingu og starfssvið félaga í faghópnum.

    Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér í stjórnina eru vinsamlegast beðnir að láta Valgerði vita sem fyrst og senda stutta ferilskrá.  

    Valgerður Gunnarsdóttir formaður Fókus
    valgerdur.gunnarsdottir@vel.is



    • 1. desember 2011