Skip to main content

Heilbrigðisráðstefnan

HEILBRIGÐISRÁÐSTEFNAN 2018 Á GRAND HÓTELI 
MIÐVIKUDAGINN 21. FEBRÚAR  KL. 13 - 16:30

"Upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu - byrði eða bjargvættur”

Twitter: @SkyIceland #HeilbRadst

Heilbrigðiskerfi vestrænna þjóða standa frammi fyrir fjölþættum áskorunum.  Aldurssamsetning er að breytast, eftirspurn eftir heilbrigðisstarfmönnum fer hratt vaxandi, krafa um aukin gæði verður sífellt skýrari og fjármögnun virðist vera endalaus barátta.

Þeim fer fjölgandi sem telja að hagnýting upplýsingatækni geti gegnt lykil hlutverk í að takast á við hinar fjölbreyttu áskoranir og að fjórða iðnbyltingin muni hafa mikil og varanleg áhrif í heilbrigðiskerfum heimsins.

Á heilbrigðisráðstefnu Fókus verður fjallað um nokkrar áhugaverðar hliðar á hagnýtingu upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu. Spurningum sem leitast verður við að svara eru m.a:

  • Tekur stefnumótun í heilbrigðisþjónustu nægilega mið af tæknilausnum?
  • Hvaða áhrif hafa framfarir í upplýsingatækni á heilbrigðisþjónustu?
  • Hvernig er best að nýta tæknina og hvað ber helst að varast?
  • Geta upplýsingatæknilausnir gert heilbrigðisþjónustuna öruggari og dregið úr óhöppum?
  • Stendur kostnaður við innleiðingu tæknilausna okkur fyrir þrifum?
  • Er aukin hagnýting upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu byrði eða bjargvættur?

Ráðstefnan er ætluð heilbrigðisstarfsmönnum, stjórnendum heilbrigðisstofnanna, öllum þeim sem þróa og þjónusta tæknilausnir fyrir heilbrigðiskerfið og áhugamönnum um framfarir í heilbrigðisþjónustu almennt.

DAGSKRÁ

12:45  Afhending gagna

13:00  Setning - Opnunarávarp

13:10   Rafræn sjúkraskrá og heilbrigðisnet. Stefna Embættis landlæknis til 2020
Farið verður yfir stefnu embættisins um notkun á upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu fram til ársins 2020. Í stefnunni er áhersla er lögð á að bæta aðgengi að upplýsingum og þjónustu, auka öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu.
Ingi Steinar Ingason, Embætti Landlæknis

13:35  Vöruhús gagna,  undirstaða umbóta á Landspítala
Kynning á því hvernig vöruhús gagna leggur grunn að öflugri gagnavinnslu sem nýtist m.a.  til umbóta- og gæðastarfs.
Elísabet Guðmundsdóttir, Landspítali

14:00  Og við skráum og skráum, hvað svo?
Sagt frá vannýttum tækifærum hér á landi í þeirri auðlind sem heilbrigðisstarfsmenn skapa á hverjum degi með skráningu í alla mögulega heilbrigðistengda gagnagrunna. Skýrt verður frá notkunarmöguleikum allra þessa upplýsinga til að stýra heilbrigðisþjónustu á skilvirkari hátt, allt frá heilbrigðiskerfinu öllu niður í staka meðferðir einstaklinga með notkun viðskiptagreindartóla.
Hrafnhildur Peiser, Capacent

14:25  Kaffihlé

14:40  Fjarheilbrigðisþjónusta, tækifæri og áskoranir
Yfirlit yfir stöðu mála . Hvað er í boði og hvernig þróunin hefur verið. Draga fram hvað þarf að gera til að heilbrigðiskerfið geti nýtt  sér upplýsinga og fjarskiptatækni til að bæta þjónustu við sjúklinga og einnig efla heilbrigðisstarfsmenn.
Sigurður Einar Sigurðsson, Sjúkrahúsið á Akureyri 

15:05   Hvernig er hægt að draga úr lyfjatengdum óhöppum með sjálfvirkni
Ívar mun fjalla um hið flókna umhverfi sem lyfjameðhöndlun á sjúkrahúsum er í dag, sívaxandi eftirspurn eftir heilbrigðismenntuðu starfsfólki, og hvernig tæknilausnir munu mögulega hjálpa við lausn vandans.
Ívar S. Helgason, Mint solutions

15:30 Skilvirkni og nýsköpun verkferla í heilbrigðiskerfinu
Fjallað um verkferla í heilbrigðiskerfinu út frá sjónarhóli iðnaðarverkfræðinnar með sérstakri áherslu á jafnvægi milli skilvirkni og nýsköpunar.
Rögnvaldur J. Sæmundsson, Háskóla Íslands.  

15:55  Gervigreind/ Heilsa þjóðar
Sigurvegarar í verkkeppni Viðskiptaráðs Íslands munu kynna hugmynd sína um nýtingu gervigreindar í heilbrigðiskerfinu. „Hvernig verður Ísland tæknivæddasta land í heimi árið 2030“
Davíð Þór Jónsson, nemandi í HÍ og Alexander Jósep Blöndal, nemandi í HR

16:20  Fyrirspurnir

16:30  Ráðstefnuslit

Ráðstefnustjóri: Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á  LSH

Undirbúningsnefnd: Anna Hafberg - Origo,  Birna Björg Másdóttir - Landspítali, Daníel Ásgeirsson - Landspítali,  Erla Björnsdóttir  - Sjúkrahúsið á Akureyri, Garðar Már Birgisson - Þula, Marta Serwatko - Landspítali

Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.


IMG 8526
IMG 8527
IMG 8528
IMG 8529
IMG 8530
IMG 8531
IMG 8532
IMG 8533
IMG 8534
IMG 8535
IMG 8536
IMG 8537
IMG 8538
IMG 8539
IMG 8540
IMG 8541
IMG 8542
IMG 8543
IMG 8544
IMG 8545
IMG 8546
IMG 8547
IMG 8548
IMG 8549
IMG 8550
IMG 8551
IMG 8552
IMG 8553
IMG 8554
IMG 8555
IMG 8556
IMG 8557
IMG 8558
IMG 8559
IMG 8560
IMG 8561
IMG 8562
IMG 8563
IMG 8564
IMG 8565
IMG 8566

  • 21. febrúar 2018