Stelpur og tækni (Girls in ICT Day)
Stelpur og tækni dagurinn (Girls in ICT Day) haldinn í ellefta sinn á Íslandi 25. apríl 2024. Dagurinn er haldinn víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.
Markmiðið með þessum degi er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar hafa að bjóða, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.
-
25. apríl 2024
-
kl. 9:00 - 12:00
-
Háskólinn í Reykjavík