Væntingar og þarfir sjúklinga eru stöðugt að breytast. Með framförum í snjallvæðingu gera sjúklingar ríkari kröfu til stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Samsetning sjúklinga breytist einnig með öldrun þjóðarinnar og auknum batahorfum eftir erfið veikindi. Á fundinum verður fjallað um það hvernig heilbrigðiskerfið getur tekist á við verkefni framtíðarinnar. Efni fundarins er fyrir alla sem hafa áhuga á stefnumótun og tækninýjungum í heilbrigðisþjónustu.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:00 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Ég er minn eigin læknir
Snjallvæðingin hefur lengi reynt að snjallvæða heilsu okkar með allskonar misgáfulegum tækjum sem sum gera eitthvað og önnur ekkert. Lítum aðeins um öxl og horfum fram veginn í heilsutengdri snjalltækni.
Guðmundur Jóhannsson, samskiptastjóri Símans
12:40 Í vinnslu
13:00 Í vinnslu
13:20 Mælingar til að hámarka heilsu
Með tilkomu tækja sem geta mælt allt frá blóðsykurstöðu niður í efnaskipta- og blóðheilsu einstaklinga er hægt að taka upplýstar ákvarðanir er varða hreyfingu og lífstíl og hvaða þætti þurfi helst að bæta. Við viljum ekki bara lifa lengur heldur einnig betur og með því að vita stöðuna í dag og hvert við viljum stefna er hægt að setja niður markmið sem koma okkur nær því takmarki. Sigurður Örn frá Greenfit ehf. fer yfir þessa hluti í stuttu erindi og kemur með nokkrar skotheldar leiðir til að besta heilsuna okkar til framtíðar.
Sigurður Örn Ragnarsson, Greenfit
13:40 Umræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Guðmundur Jóhannsson, samskiptastjóri Símans
Undirbúningsnefnd:
Stjórn Fókus, faghóps Ský um upplýsingatækni í heibrigðisgeiranum
Ský - Skýrslutæknifélag Íslands (The Icelandic Computer Society)
480870-0189 | Engjateigi 9 | 105 Reykjavík | 553 2460 | sky@sky.is