Skjalasniðið Open Document Format, ODF, er orðið að alþjóðlegum staðli og núna hefur fyrsta gerð ODF-forritaviðbótar, plug-in, fyrir Microsoft Word litið dagsins ljós. Með henni er hægt að vista Word skjöl sem ODF og þar með uppfylla kröfur um slíkt ef svo ber undir. IBM hefur líka tilkynnt að næsta gerð Lotus Notes muni styðja ODF.