Skip to main content

Ítarefni um Ský

Skýrslutæknifélag Íslands, Ský, hefur starfað síðan 1968 og því elstu samtök á Íslandi sem starfa að UT og óháð stofnunum og hagsmunasamtökum. Ekki þarf að taka fram að tækniheimurinn hefur gengið í gegnum margar byltingar á þeim tíma. Fáir höfðu aðgang að tölvum fyrir 38 árum en eru fyrir löngu orðnar almenningseign og órjúfanlegur hluti, og ómissandi í daglegu lífi fólks á öllum aldri og fyrir starfsemi þjóðfélagsins. Með tilkomu öflugra og hraðvirkra tölvuneta hefur heimurinn orðið sem eitt og haft í för með sér að UT-fyrirtæki á Íslandi geta selt vörur, þjónustu og sérfræðiþekkingu sína um allan heim. Ský hefur fylgt þessari byltingu frá upphafi og starfið tekur jafnan mið af tíðarandanum þó nafnið endurspegli rætur tækninnar.

Read more …Ítarefni um Ský

Aðild einstaklinga

Einstaklingsaðild

Allir geta orðið félagar í félaginu sem áhuga hafa á upplýsingatækni. Einstaklingar sem vilja ganga í félagið gera það með því að fylla út formið hér að neðan en bent er á að ef um aðild einstaklinga á vegum fyrirtækja er að ræða skal skrá það í gegnum "Aðild á vegum fyrirtækja".

{form 1} 



Skráning í Ský

Ský er félag fyrir fólk og fyrirtæki í upplýsingatækni.
Við miðlum þekkingu og tengjum fólk sem starfar í eða hefur áhuga á upplýsingatækni. Hlutverk Ský er að bjóða upp á fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því öfluga þekkingar- og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins.

Hvernig virkar félagsaðild?
  • Félagsaðild í Ský er alltaf skráð á einstakling, jafnvel þó fyrirtæki greiði félagsgjaldið.
  • Aðildin fylgir einstaklingnum þó hann skipti um starf.
  • Fyrirtæki og stofnanir eru ekki félagar í Ský heldur eru það starfsmennirnir sem eru skráðir.
  • Skilyrði fyrir afslætti á viðburði er að sami greiðandi sé fyrir félagsgjaldið og viðburðinn.
  • Árgjöld fylgja almanaksárinu og eru rukkuð eftir aðalfund í febrúar ár hvert.
Hægt er að skrá sig á tvo vegu:
  1. Á vegum fyrirtækis. Fyrirtækið greiðir félagsgjaldið.
  2. Sem einstaklingur. Einstaklingurinn greiðir félagsgjaldið sjálfur.

Virkir félagar eru þeir sem greiða árgjöldin og skilyrði fyrir afsláttum á viðburði að félagsgjald ársins sé greitt. 

Ávinningur af aðild:
  • Veglegur afsláttur á viðburði og ráðstefnur (t.d. UTmessuna)
  • Tækifæri til tengslamyndunar við fólk í tæknigeiranum
  • Aðgangur að faghópum og faglegu starfi innan félagsins
  • Aðgangur að lokuðum viðburðum, t.d. heimsóknum til fyrirtækja
  • Tækifæri til að starfa í stjórn faghópa og undirbúningsnefndum viðburða
  • Þátttaka í ritnefnd og orðanefnd
  • Áskrift að Tölvumálum, fagtímariti um tækni
  • 10% afslátt af námskeiðum hjá Opna háskóla HR
  • Afsláttur af völdum námskeiðum hjá Akademias

Fylltu út formið til að skrá þig í Ský.

Nafn þátttakanda verður að vera skráð
(Name of participant must be registered)
Kennitala verður að vera 10 tölustafir án bandstriks og vera gild kennitala
(Icelandic Social Sec. number must be registered and valid - 10 digits without hyphens)
Netfang er ekki gilt
(Email address not valid)
Faghópaskráning - Hakaðu við ef þú vilt fylgjast með faghópum Ský
Invalid Input
Nafn greiðanda/fyrirtækis verður að vera skráð
(Name of payer/company missing)
Kennitala greiðanda/fyrirtækis verður að vera 10 tölustafir án bandstriks og vera gild kennitala
(Payer/company Icelandic Social Sec. Number must be valid and 10 digits without hyphens)
Invalid Input

Allir sem skrá sig í Ský fara sjálfkrafa á póstlista félagsins og fara flestöll samskipti fram í gegnum tölvupósta. Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er með því að senda tölvupóst á sky@sky.is eða ýta á AFSKRÁ neðst í póstum frá Ský.

Skrá mig á póstlista

 Skrá mig á póstlista

Allir geta skráð sig frítt á póstlista án þess að vera félagsmenn. Aðilar á póstlista Ský fá sendar auglýsingar um opna viðburði á vegum félagsins. Skv. reglum Ský eru upplýsingar um póstlista aldrei afhentar 3ja aðila.

Hægt er að afskrá sig hvenær sem er með því að senda tölvupóst á sky@sky.is eða ýta á AFSKRÁ neðst í póstum frá Ský.

Read more …Skrá mig á póstlista

Aðild nemenda

Nemendur á háskólastigi geta verið félagar á meðan á námi stendur.


{form 3}