Eyðing gagna
Oft er talað um að gögn séu ein verðmætasta auðlind fyrirtækja og stofnana. En hvað gerist þegar þau safnast upp? Hvenær erum við að safna réttu gögnunum og hvenær erum við einfaldlega komin með söfnunaráráttu? Eru öll gögn jafn mikilvæg?
Á þessum hádegisfundi ætlum við að kafa í eyðingu gagna frá mismunandi sjónarhornum. Við ræðum líftíma gagna, varðveislu og geymslur, „týnd og fundin“ gögn í kerfum og skýjalausnum, og hvernig við tryggjum að við séum ekki að geyma meira en við þurfum, eða lengur en við megum.
Dagskrá:
11:45 Léttur hádegisverður (fyrir framan Kaldalón) og tengslanetið styrkt

12:15 Eyða fyrst, spyrja síðan? Hvað getum við lært um gögn sem við ættum ekki að geyma?
Allir telja að það sé ódýrast að geyma allt ef þú gætir þurft síðar, en raunin er að eyðing gagna er eitt hagnýtasta tækið í stjórnun upplýsingaöryggis í dag. Hvaða kröfur ættum við að setja á fyrirtæki og stjórnvöld um geymslu og kaup á gögnum ? (og eyðingu þeirra). Rökin eru einföld: Gögn sem þú geymir ekki geta ekki lekið eða verið beitt gegn þér.
Arnar Snær Gunnarsson, OK

12:35 Af hverju ekki?
Af hverju má ég ekki safna þessum gögnum? Af hverju má ég ekki geyma þessi gögn? Af hverju má ég ekki nota þau eins og mig langar? Af hverju ekki?
Elfur Logadóttir, ERA
Af hverju má ég ekki safna þessum gögnum? Af hverju má ég ekki geyma þessi gögn? Af hverju má ég ekki nota þau eins og mig langar? Af hverju ekki?
12:55 Stutt hlé og fyllt á kaffibollann

13:00 Lærdómurinn við að flytja aldraða foreldra gagnvart eyðingu gagna
„Þarf að geyma þetta?" „Má nokkuð ekki eyða neinu“. „Geymum bara til öryggis“. Áskoranir bæði opinberra stofnana og fyrirtækja eru margar þegar kemur að því að ákveða, velja eða skilgreina hvað þarf að geyma, hversu lengi og hverju má eyða hvenær. Svarið er á liggur á gráu svæði rétt á milli upplýsingaóreiðu og stífar upplýsinga- og skjalastjórnunar. Óskar Þór segir frá vinnu Reykjavíkurborgar við að meta gögn og skjöl og hvernig flutningur foreldra hans úr húsnæði eftir 40 ára búsetu hafði djúpstæð áhrif á upplýsinga- og skjalamálin.
Óskar Þór Þráinsson, Reykjavíkurborg

13:20 Varðveisla menningar með stafvæðingu
Rannsóknir á íslenskri menningu og sögu nýta sér í vaxandi mæli stafræn gögn og stafrænar aðferðir. Þó enn eigi eftir að stafvæða stóran hluta menningararfsins er þróunin augljós. Við virðumst því standa mitt í straumi breytinga sem munu hafa áhrif á hvaða gögn verða aðgengileg og hvaða gögn gleymast og týnast. Mannkynssagan er full af breytingaskeiðum af þessu tagi sem hafa leitt til þess að mikilvæg söguleg gögn hafa glatast, þ.e. þau sem lifðu ekki tæknibreytinguna af. Við þurfum því að takast á við spurninguna: Hvaða gögn viljum við varðveita í stafrænu formi og hvaða gögn erum við tilbúin til að skilja eftir hliðrænt?
Eiríkur Smári Sigurðarson, Háskóli Íslands

13:40 Umræður og spurningar
14:00 Fundarslit
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um hagnýtingu gagna
-
4. mars 2026
-
kl. 12:00 - 14:00
-
Félagsmenn Ský: 8.300 kr.
Utanfélagsmenn: 14.900 kr.
Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr. -
Léttur hádegisverður:
Lax hjúpaður með fræjum, kryddjurtum og fetaosti (GF) Rattatoui í tómatsósu (V,GF) Blómkálssalat með spínat og sítrónu (V, GF) Grænt salat (V, GF) Sætkartöflusalat (V, GF) Nýbakað brauð, smjör og tapinade (VEGAN, GF)