Skip to main content

Annálar 1961 - 1970

1961 - 1970

  • 1961
  • Ottó A. Micheslen, forstjóri IBM á Íslandi, og Bjarni P. Jónasson, forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurbæjar, undirrita, í mars eða apríl, leigusamning um IBM 1401 vélasamstæðu.
  • 1962
  • Fjármálaráðherra (Gunnar Thoroddsen) fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og borgarstjórinn í Reykjavík (Geir Hallgrímsson) fyrir hönd Reykjavíkurborgar staðfesta nýjan sameignarsamning um Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar (sem áður hétu Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurbæjar).
  • 1964
  • Skýrsluvélar fá IBM 1401 tölvu.  Skýrsluvélar flytja í nýtt sérhannað hús að Háaleitisbraut 9.
  • Háskóli Íslands fær IBM 1620 tölvu.
  • 1967
  • Fyrsti „rafreiknir“ Landsbanka Íslands gangsettur 10. apríl  í sérinnréttuðu húsnæði á 3. hæð að Laugavegi 77.  Tölvan var af gerðinni IBM 360/20 og hafði 16K vinnsluminni.
  • 1968
  • Skýrsluvélar leigja IBM 360/30 tölvusamstæðu búna segulböndum, seguldiskum og lesstöð fyrir gataræmur. Viðamestu skrár á gataspjöldum færðust nú á segubönd.
  • 1970
  • Tekið í notkun reiknilíkan við mat á verðmæti fasteigna. Líkanið var forrritað í FORTRAN II fyrir IBM 1620 tölvu Reiknistofnunar Háskólans.