Skip to main content
1. mars 2018

Fimm gerðir að heiðursfélögum á aðalfundi Ský

HEIDURSFELAGAR 2018

Fimm einstaklingar voru sérstaklega heiðraðir fyrir framlag þeirra til upplýsingatækni á Íslandi á aðalfundi Ský 28. febrúar 2018.

Þau Anna Ólafsdóttir Björnsson, Arnlaugur Guðmundsson, Frosti Bergsson, Sigurður Bergsveinsson og Þorsteinn Hallgrímsson voru þá gerð að heiðursfélögum Ský, en þau hafa öll unnið mikið og gott starf fyrir félagið og hvert á sinn hátt ritað blað í þróun tölvuvæðingar á sinni starfsævi. Þá hafa þau tekið virkan þátt í að taka saman sögu tölvuvæðingar á Íslandi sem birt var á vef Ský 2016 og kemur út í bókarformi í byrjun apríl.

 

Ský hefur að leiðarljósi að gera einstaklinga að heiðursfélögum sem hafa unnið óeigingjarnt starf fyrir félagið og/eða brautryðjendastarf í upplýsingatækni á Íslandi. Miðað er við að heiðra fólk á seinni hluta starfsævinnar. Frá upphafi hefur félagið heiðrað 24 einstaklinga og hér er að finna lista yfir þá ásamt æviágripi.

Skoðað: 1698 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála