Skip to main content
4. apríl 2019

Vélmennin taka yfir

Guðmundur VestmannÞeim fjölgar stöðugt sem ráða sinn persónulega aðstoðarmann. Þeir eru að vísu ekki eins snjallir og aðstoðarmenn ráðherra, en nokkuð snjallir samt. Hún Siri greyið hefur þó ansi oft verið skotspónn grínara á netinu, ýmist fyrir hnyttnar eða þá algjörlega fáránlegar athugasemdir. En hverju sem því líður, þá hefur þróun þessara talandi aðstoðarmanna sem byggja á gervigreind verið ótrúleg síðustu ár.

Svo virðist sem öll stóru tæknifyrirtækin séu að veðja á að framtíð stýrikerfanna eigi að byggja á gervigreind og munnlegum samskiptum við tölvuna sjálfa. Til að mynda hefur Google notað sinn Assistant sem helsta sölupunkt í Pixel-línunni. Við uppsetningu á hugbúnaði frá Microsoft og Apple er Cortönu og Siri otað að notendum. Amazon hefur innleit Alexu í sín tæki og sömuleiðis hefur Samsung kynnt sitt vélmenni, hann Bixby karlinn. Af þessu að dæma eigum við öll að verða ástfangin af stýrikerfi eins og Joaquin Phoenix í myndinni „Her“.

Hversu snjallir þessir aðstoðarmenn eru ætla ég að láta að liggja á milli hluta. Í því samhengi má hinsvegar benda á mjög áhugavert myndband á Youtube. Það er MKHBD, vinsælasti tæknibloggari heims, sem lætur fjóra þessara aðstoðarmanna etja kappi. Myndbandið ber heitið: „The Voice Assistant Battle!“

En hvað um okkur hin?

Flestir þessara aðstoðarmanna bjóða upp á API fyrir okkur hin til að tala við. Þannig má innleiða skipanir í samræðu-bottann sem hann svo bregst við. Framleiðendur snjalllausna fyrir heimili hafa verið sérstaklega duglegir við að nýta sér þetta; þeir sem eiga Philips Hue ljós geta t.a.m. slökkt og kveikt á þeim með Google Assistant eða Alexa. Ákveðnar bókunarþjónustur bjóða notendum upp á að panta sér borð á veitingastöðum og streymisveitur svara kalli tónlistarunnenda með þeirri músík sem óskað er eftir. Hér má hinsvegar velta upp þeirri spurningu hver ávinningur íslenskra fyrirtækja væri að tengjast þessum ÖPUM.

Þessir áðurnefndu tæknirisar hafa að sjálfsögðu mun meira bolmagn en íslensk fyrirtæki til að standa í slíkri hátæknilegri hugbúnaðarþróun - og allt aðra hagsmuni. En það þýðir þó alls ekki að við getum ekki notið góðs af tækninni. Undanfarin misseri hafa sprottið fram ótal aðilar erlendis sem bjóða upp á slíka samræðu-botta sem ódýrt er að innleiða en geta auðveldað mjög samskipti við viðskiptavini.

Þessar lausnir byggja þó fremur á textainnslætti heldur en raddstýringu, enda hentar það hefðbundnari veflausnum betur. Einnig er sá hópur orðinn ansi stór sem notar spjallforrit sem sitt helsta samskiptatól og eyðir lengri „skjátíma“ í slíkum forritum en á hefðbundnari vefmiðlum. Það hefur samband við fyrirtæki í gegnum Messenger, Instagram og Snapchat og það vill skjót svör. Þeirra viðmót er díalógur, broskallar og innsláttarreitir fremur en mega-valmyndir og ljósblálitaðir hlekkir. Því helst þróunin auðvitað í hönd við það. Og finnst fólki ekki bara pínu kjánalegt ennþá að tala svona við tölvuna sína?

Ef við köfum dýpra í virkni þessara lausna, þá má segja að hægt sé að skipa þeim á lárétta línu. Á vinstri endanum eru samræðu-bottar sem byggja alfarið á notkun hnappa þar sem notendur velja fyrirframgefnar spurningar og bottinn leiðir þannig samtalið áfram. Á hægri endanum eru hinsvegar bottar sem nýta sér algjörlega gervigreindina og draga lærdóm af samtalinu. Notandi getur þannig skrifað það sem honum sýnist, bottinn greinir það og svarar á viðeigandi hátt.

Fyrir minni fyrirtæki er slík hnappavirkni ákjósanlegur kostur: yfirleitt eru þau verkefni sem verið er að leysa einfaldari og utanumhald um slíka lausn er ekki mikið. Uppsetningin er einföld og kostnaður í lágmarki. Fyrir stærri fyrirtæki eða stofnanir gætu hinsvegar samræðu-bottarnir á hægri endanum hentað betur, en það þýðir þó meira utanumhald og jafnvel hærri kostnað við innleiðingu.

Flestar þessar lausnir bjóða einnig upp á tilbúnar tengingar við stærstu spjallforritin, s.s. Facebook Messenger, Skype, Slack, Telegram, netspjall vefsíðna, og fleira. Þó er vert að taka fram að mörg þessara spjallforrita eru takmörkuð að einhverju leyti, t.a.m. getur Messenger ekki sent verkbeiðnir og aðeins er hægt að bjóða upp á þrjá hnappa í hverju svari bottans.

Íslensk vélmenni

Íslendingar eru nýjungagjarnir og því ekki að undra að þónokkur íslensk fyrirtæki hafi tekið í notkun samræðu-. Ég held að sá fyrsti sem ég spjallaði við var vélmenni Vodafone. Samskiptin hafa þó eitthvað stirðnað á undanförnum vikum (eins og sjá má á mynd 1) en ég vona nú að það séu bara tímabundnir samskiptaörðugleikar.

mynd 1

Mynd 1

Kveikjan að þessari grein var þó chat-bottinn sem við hjá Rafrænni þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar innleiddum á vef Visit Reykjavík. Við erum auðvitað mjög stolt af því að vera fyrsti opinberi vefurinn sem tekur í notkun slíka lausn og vonum að þetta verði til þess að fleiri aðilar innan sem utan borgarinnar leggi í slíka vinnu.

mynd 2

Mynd 2

Án þess að ætla að fara mjög nákvæmlega út í innleiðingarferlið þá má segja að það hafi verið okkur mjög lærdómsríkt. Við hófum þetta allt með vinnustofu þar sem við kynntum okkur heim bottanna og í kjölfarið kortlögðum við þau verkefni sem VisitReykjavík.is og aðrir miðlar Höfuðborgarstofu þurfa að leysa á hverjum degi. Það voru teiknuð upp flæðirit og skrifað eitthvað sniðugt fyrir ómennið að segja. Og svo ákváðum við bara að stinga vélinni í samband í staðinn fyrir að liggja yfir þessu of lengi. Aðeins þannig, með spjalli við notendur og rýni í gögn, getum við bætt lausnina og þróað hana áfram. Þannig er þetta auðvitað stöðugt verkefni, en með tímanum verður utanumhaldið minna og minna. Það er jú einmitt af mistökunum sem við lærum.

Ég hvet ykkur eindregið til að heimsækja síðuna og rabba aðeins við bottann okkar. Hann er nú hálfgerður óviti ennþá, enda bara nokkurra vikna. Vinna við útgáfu 2.0. er þó hafin og það lítur út fyrir að skipt verði um bakenda og snjallari gervigreind nýtt í þeirri útgáfu.

Högundur: Guðmundur Vestmann, verkefnastjóri, Rafræn þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar

Skoðað: 1222 sinnum

Blaðið Tölvumál

Forsíða Tölvumála

Leita í vefútgáfu Tölvumála

Um Tölvumál

Tölvumál - tímarit Skýrslutæknifélags Íslands er óháð tímarit um tölvutækni og hefur verið gefið út frá árinu 1976.

Vefútgáfa Tölvumála birtir vikulega nýja grein á vef Ský og árlega er gefið út veglegt prentað tímarit undir nafninu "Tölvumál" þar sem fjallað er um tölvutækni frá ýmsum sjónarhornum og er þema blaðsins jafnan valið snemma árs og útgáfa að hausti.

Ritnefnd Ský sér um að afla efni í Tölvumál og geta allir sem áhuga hafa sent inn efni.

Um ritnefnd Tölvumála