Skip to main content

Stuðningur v. klíniska ákvarðanatöku

 

Stuðningur við klíníska ákvarðanatöku
Vaxtabroddar í íslenskri hugbúnaðargerð

 Fræðslufundur Fókus

fimmtudaginn 29. nóvember kl 16:30 – 18:00
í ráðstefnusal Nýherja Borgartúni 37

Taktu þátt í umræðunni á Twitter: @SkyIceland #klinik

Fluttir verða þrír fyrirlestrar frá fyrirtækjum sem hafa á undanförnum árum þróað og sett á markað hugbúnað sem styður við klíníska ákvörðunartöku lækna. 

Ólafur Pálsson frá RISK medical solutions www.risk.is mun segja frá áhættureiknivél sem reiknar út líkindi á skemmdum í augnbotnum vegna sykursýki og gefur ráðleggingar um næsta endurkomutíma.

Þorsteinn Geirsson frá Expeda www.expeda.is fjallar um afurðir þeirraen þær veita heilbrigðisstarfsmönnum aðstoð við greiningu og ákvörðun meðferðar á beinþynningu og algengum sjálfsofnæmis sjúkdómum. - Fyrirlestur féll niður -

Kristinn Grétarsson frá Mentis Cura www.mentiscura.is segir frá gagnagrunni og greiningartólum fyrir heilalínurit sem fyrirtækið hefur þróað, meðal annars í þeim tilgangi að reikna út áhættu á því að einstaklingur fái Alzheimer.

Fræðslufundurinn er opinn öllum félagsmönnum og er ókeypis.  
Þarf ekki að skrá sig fyrirfram heldur bara mæta.

 


IMG 6809
IMG 6810
IMG 6829

  • 29. nóvember 2012