Skip to main content

CodeWeek

Hádegisfundur 8. október kl. 12-13
í kjallara Engjateig 9 (Verkfræðingahúsið)

“Forritum framtíðina - EU CodeWeek 2014”

Twitter: @SkyIceland #CodeIS #CodeEU


Hvað eiga smáforrit í síma, þvottavél, GPS leiðsögutæki, félagsleg samskipti á netinu og tölvuleikir sameiginlegt?  Svar: Forritun. Forritun er ekki bara tækni heldur áhrifarík leið til að koma sköpun og hugmyndum á framfæri og forritun skapar fé og störf! Það vantar fleira fólk með skilning og menntun í tækni og forritun og hlutfall kvenna er undarlega lágt!

Evrópska forritunarvikan fer fram daganna 11. - 17. október og hefur það að markmiði að vekja áhuga og auka skilning fólks á forritun. Þessa viku fer fólk um alla Evrópu á námskeið og viðburði til að læra og kynnast forritun, en mörgum kemur á óvart hve skapandi, skemmtilegt og gríðarlega mikilvægt það er að kunna að forrita.

Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á að skipuleggja viðburði og hrinda hugmyndum í framkvæmd með forritun á meðan á vikunni stendur eða í kringum vikuna. Líka þeim sem vilja bara njóta viðburðanna.

Dagskrá fundar

12:00-12:10   Mikilvægi forritunar fyrir framtíðina
                       Berglind Ósk Bergsdóttir, Plain Vanilla

12:10-12:20   Forrituð íþróttakennsla og samlokugerð
                       Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, Lágafellsskóli

12:20-12:30   Forritun með iPad
                       Ólafur Sóliman, Epli

12:30-12:40   Frumgerðasmíði með FabLab
                       Stefanía Kristinsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands

12:40-12:50  Forritunarvikan með /sys/trum
                       Ingibjörg Ósk Jónsdóttir, /sys/tur

12:50-13:00   Forskot til framtíðar - forritun er fyrir alla
                       Árdís Ármannsdóttir, Skema

13:00              Fundarslit

Fundarstjóri: Svanbjörg H. Einarsdóttir, Evrópustofu

Boðið verður uppá samlokur á fundinum.

Frítt er á viðburðinn en þarf að SKRÁ SIG FYRIRFRAM þar sem húsrúm er takmarkað.


Hér eru nánari upplýsingar um CodeWeek: 

http://www.skema.is/codeweek/ og á evrópsku síðunni: http://codeweek.eu/

Allar upplýsingar um Evrópsku forritunarvikuna gefur Árdís Ármannsdóttir, ardis@skema.is


20141008 120952
20141008 122151
20141008 124645
FB IMG 14127703772228190
FB IMG 14127704151030186
FB IMG 14127704213691957
FB IMG 14127717531361134
FB IMG 14127717660212225
FB IMG 14127717699513299

  • 8. október 2014