Skip to main content

NútímaKennsla

Hádegisfundur á Grand hóteli 14. mars 2018  kl. 12-14 

Erum við betur stödd með nútímatækni í kennslu eða er hún hamlandi?

 Twitter: @SkyIceland #NutimaKennsla 

Mikil þróun hefur orðið á miðlun námsefnis undanfarin ár og nútímalausnir á netinu í auknu mæli notaðar í kennslu. Hvernig hafa þessar lausnir nýst í skólastarfinu og hvaða áhrif hafa þær  á íslenska tungu?

Fundurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á framþróun nútímatækni, íslenskri tungu og menntamálum.

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Google lausnir í skólastarfi?
Síðustu ár hefur Google lagt mikla áherslu á að útvega lausnir sem eru sérstaklega sniðnar að skólastarfi á 21. Öldinni. Í Fellaskóla hefur verið þróunarverkefni um nokkurt skeið þar sem möguleikarnir með Google lausnum hafa verið skoðaðir.
Páll Ásgeir Torfason, grunnskólakennari í Fellaskóla

12:40-13:00   Nám nútímans - í skýjum, sýndarveruleika og á samfélagsmiðlum
Ógrynni verkfæra eru nú aðgengileg fyrir nemendur við nám sitt og geta þeir leitað víðar fanga en áður hefur þekkst. Þeir geta einnig verið í samstarfi og samskiptum um nám sitt hvenær sem er, hvar sem er. Skiptir þetta máli?
Lára Stefánsdóttir, skólameistari Menntaskólanum á Tröllaskaga

13:00-13:20   Khan Academy í stærðfræði á framhaldsskólastigi
Tækniskólinn hefur keyrt stærðfræðiáfanga þar sem megin áhersla er lögð á vinnu í Khan. Engin kennslubók og allt unnið rafrænt. Námið er skipulagt þannig að nemandinn vinnur á sínum forsendum og er námsmatið blanda af vinnuframlagi og færni í stærðfræði.
Þorsteinn Kristján Jóhannsson, stærðfræðikennari Tækniskólanum

13:20-13:40   Íslenska í ólgusjó: Áhrif samfélags- og tæknibreytinga á tungumálið
Í erindinu verður fjallað um hvernig þær miklu samfélags- og tæknibreytingar sem hafa orðið á Íslandi undanfarinn áratug gætu haft áhrif á íslenskuna. Hugtakið "stafrænn tungumáladauði" (e. digital language death) verður kynnt, rætt hvort líkur séu á að slíkur dauði bíði íslenskunnar, og hvort stafrænn dauði leiði óhjákvæmilega til dauða í raunheiminum.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Hugvísindasvið HÍ. 

13:40-14:00   Tækni og máltaka barna: Málörvun eða vanörvun?
Sífellt gagnvirkari og notendavænni lausnum fylgir stóraukið en um leið umdeilt aðgengi barna að tækni. Hvaða áhrif hefur þetta á málþroskann? Er verra að stafrænt efni sé á öðru tungumáli en móðurmáli barnanna? Í erindinu verður lögð áhersla á samspil tækni og máltöku og kynntar nýjar leiðir til þess að leita svara við þessum spurningum.
Íris Edda Nowenstein, doktorsnemi við Háskóla Íslands

14:00              Fundarslit

Fundarstjóri: Disa Anderiman

Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps Ský um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT.
Matseðill: Kókosbætt kjúklingasúpa með lime og tailensku karrý. Sætindi / kaffi /te á eftir.

Verð fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Verð fyrir einstaklinga utan vinnumarkaðar: 5.000 kr.



  • 14. mars 2018