Skip to main content

Vefur 2,0 - Hádegisfundur um forritunarmál á vefnum

Vefur 2,0 - Ertu tilbúinn?
Hádegisverðarfundur um forritunarmál á vefnum
var haldinn fimmtudaginn 2. mars á Grand Hótel Reykjavík
Frá 12:00-14:00

 

Vefur 2.0 er stundum notað sem samheiti yfir þá sýn að í dag sé eðli og notkun vefja á Netinu gjörbreytt frá því sem var um aldamótin. Fjölmargir vefir hafa í dag allt aðra nálgun og virkni en áður sást. Ef segja má að vefur 1.0 sé hin dæmigerða birting upplýsinga á vefsíðu þá er vefur 2.0 vefsíða þar sem notandinn getur nýtt sér fjölda miðla, gagnagrunna og virkni á mun fjölbreyttari og virkari hátt en áður.

Margt er nefnt sem fellur undir þessa nýju skilgreiningu eins og að hverfa frá hinu hefðbundna niðurnjörvaða síðulíkani yfir í umhverfi þar sem stakir hlutir eru endurnýjaðir og tekur á sig mynd eftir innihaldi (content) og að vefsetrin verði tölvugrunnur undir vefforit.
 
Notendur munu hætta að fletta  vefsíðum  en í staðinn ná í gögn sem verða  drifkrafturinn  sem ýtir  undir þátttöku þvert á marga þar sem netáhrif verða  víðtæk. Þegar dæmi eru tekin um þróun í átt að Vef 2.0 er vísað í blogg, wiki, podcast og með notkun RSS sem allt eru seinni tíma fyrirbæri á vefnum. Google Earth (Ajax) er einnig dæmi um  þessa nýju  tækni.

Það er því ekki nema von að margvíslegar spurningar vakni  þegar straumhvörf verða og á fundi Ský var ætlunin að koma inn á atriði eins og:

      

  • Hvernig verða vefmælingar í þessu nýja umhverfi?
  • Er vefhönnun liðin tíð?
  • Hafa notendur miklu meiri áhrif en áður á innihald?
  • Er hægt að verða með nýja sýn á gögn og samtengja frá ólíkum áttum?
  • Þarf nýja vafra fyrir Vef 2.0 eða þarf að taka sérstakt tillit til nýrra vafra eins og á farsímum?
  • Hvaða áhrif hefur Vefur 2.0 á landfræðilega staðsetningu gagna og afköst og hraða?
  • Hvaða verkfæri þarf að hafa fyrir Vef 2.0?


    Dagskrá:




12:00     
Skráning fundargesta 
12:15 
Setning fundarins og hádegisverður 
12:40 
Tækifæri og ógnanir - Glærur -
Sigmundur Halldórsson E-business Manager hjá FL Travel group
13:00 
Hvað er Ajax? Pétur Ágústsson TM-Software - Glærur -
13:20     
Ajax í þínu rekstrarumhverfi  - Glærur -
Ágúst Valgeirsson þróunarstjóri hjá Innn ehf.
13:40         
Umræður í lok fundarins 
13:55         
Fundi slitið 








 

 

 



 

 



Fundarstjóri var Hugi Þórðarson verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Umferðastofu og formaður SVEF

Á matseðlinum var:
Ostagljáður karfi og steinbítur með risarækju, hvítvínsrisotto og seljurótarsósu og í eftirrétt: peru og súkkulaðiterta með baileysrjóma og jarðaberjum

 

 


54
55
57
58

  • 2. mars 2006