Skip to main content

Málþing Fókus


Staðlar í samþættingu og samskiptum í rafrænni sjúkraskrá


Málþing á vegum Fókus,faghóps um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu verður haldið í
matsal Skýrr, Ármúla 2,  fimmtudaginn 10. maí  kl. 16.00-17.15
 
Rætt verður um notkun staðla út frá ýmsum sjónarhornum m.a. hvernig þeim er beitt i samþættingu sjúkraskrárkerfa hjá Landspítala, hlutverk Landlæknisembættisins í yfirumsjón með notkun staðla og sagt verður frá nýlegur ISO staðli um notkun orðasafns (terminologiu) fyrir hjúkrunarskráningu.  Umræður verður á eftir erindunum.

Fyrirlesarar verða:

Ingi Steinar Ingason, verkefnastjóri í hugbúnaðardeild á upplýsingatæknisviði LSH - Stöðluð samþætting á LSH

Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri á heilbrigðstölfræðisviði Landlæknisembættisins  - Hlutverk Landlæknisembættisins í stöðlun skáningar

Ásta St. Thoroddsen, dósent og formaður námsnefndar MHI náms við Háskóla Íslands – Nýr staðall í hjúkrunarskráningu

Allir velkomnir

Með kveðju
Valgerður Gunnarsdóttir formaður Fókus



  • 10. maí 2007